7400 fermetra nýbygging á Alþingisreitnum 27. september 2007 14:52
Til stendur að byggja 7400 fermetra byggingu vestan við Alþingishúsið sem hýsa á skrifstofur Alþingis, Þetta kom fram á fréttamannafundi sem Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, og fulltrúar borgarinnar efndu til til þess að kynna nýtt deilisskipulag á Alþingisreitnum. Hugmyndir um að byggja yfir alla starfsemi Alþingis á svokölluðum Alþingisreit sem afmarkast af Kirkjustræti, Vonarstræti, Tjarnargötu og Templarasundi hafa lengi verið til umræðu en lausn virðist nú í sjónmáli. Í tillögu að deiliskipulagi sem kynnt var í dag er gert ráð fyrir að nýbygging upp á 7100 fermetra rísi vestan Alþingishússins og verður hún tengd Alþingishúsinu með 300 fermetra glerbrú. Þá verður 1900 fermetra bílakjallari undir húsinu fyrir 75 bifreiðar. Húsið verður stallað þannig að það verður jafnhátt Oddfellow-húsinu þar sem það er hæst en minnkar eftir því sem nær dregur Austurvelli. Í framhaldinu er ætlunin að losa allt leiguhúsnæði Alþingis sem nemur um fjögur þúsund fermetrum og selja húseign Alþingis utan reitsins, Þórshamar við Templarasund. Fram kom í máli Sturlu Böðvarssonar að Alþingi hefði hingað til borgað nærri átta milljónir króna á mánuði í húsaleigu. Til þess að þetta sé mögulegt þarf að flytja húsið að Vonarstræti 12, svokallað Skúlahús, og verður það flutt á horn Tjarnargötu og Kirkjustrætis við hlið Skjaldbreiðarhússins. Skjaldbreið verður endurbyggð í sem næst upprunalegri mynd en hún hefur verið í mikilli niðurníðslu. Fram kemur í tilkynningu frá Alþingi að nokkrar athugasemdir hafi komið fram við auglýsta deiliskipulagstillögu en það er niðurstaða forseta Alþingis, sem er studd af forsætisnefnd Alþingis, að koma megi til móts við framkomnar athugasemdir í veigamiklum atriðum. Sturla Böðvarsson sagði enn fremur að hann legði áherslu að gera götumyndina við Kirkjustræti sem besta. Tillögurnar hafa verið unnar í samráði við borgarstjóra og skipulagsráð Reykjavíkurborgar og er þess vænst að þær verði afgreiddar formlega af Reykjavíkurborg fljótlega. Þá kom fram á blaðamannafundinum að Torfusamtökin hefðu lagt blessun sína yfir tillöguna. Þegar skipulagið hefur verið samþykkt mun verða hafist handa við hönnun nýbyggingarinnar, undirbúning viðgerðar og flutning gömlu húsanna auk fornleifaathugana á byggingarreitnum. Þá verður unnið að frumáætlun um kostnað og framkvæmdir. Ekki ligggur fyrir hvenær framkvæmdir hefjast eða hver kostnaðurinn við þær verður.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sjá meira