Andstaða við flugvöll á Hólmsheiði 22. apríl 2007 18:42
Borgaryfirvöld mega búast við harðri andstöðu gegn flugvelli á Hólmsheiði frá íbúum Grafarholts. Hver einasti íbúi hverfisins, sem Stöð tvö innti álits í dag, lýsti sig andvígan hugmyndinni. Meðal þeirra er Níels Árni Lund, einn af frumbyggjum hverfisins, en hann segir að íbúum, sem hann hafi rætt við, lítist ekki á þetta. Þetta leysi ekkert. Aðeins sé verið að færa flugvöll yfir í annað hverfi, - ört vaxandi íbúðahverfi. Sveinn Arnarson segir þetta bara tilfærslu á vandamáli. Það liggi í augum uppi að þetta sé slæmt fyrir íbúana. Þetta sé alveg út í hött. Bryndís Halldóra Bjartmarsdóttir segir að sér hugnist þetta lítt. Þetta sé ansi nálægt þeim sem búi í þessu hverfi. Kjartan Kristinsson kveðst vera á móti flugvelli á Hólmsheiði vegna þess að hann trufli kyrrðina þarna og auk þess séu miklir sviptivindar þarna upp frá. Þórður Theodórsson segir að sér líki þetta engan veginn. Hann hafi flutt í hverfið til að komast í ró og nálægð við náttúruna en ekki við hávaða og læti. Og Margeir Vilhjálmsson segir að þetta sé arfavitlaus hugmynd.Bæjarstjóri Mosfellsbæjar hefur sömuleiðis miklar efasemdir um flugvöll þar en hann er teiknaður að stórum hluta í lögsagnarumdæmi Mosfellsbæjar.Borgaryfirvöld í Reykjavík geta því ekki ein skipulagt flugvöll á Hólmsheiði. Mosfellsbær myndi hafa þar úrslitaáhrif enda er flugvallarstæðið, eins og það er nú teiknað, að þremur fjórðu í umdæmi Mosfellsbæjar. Aðflugsleið inn á norður-suður braut myndi væntanlega liggja yfir jarðstöðina Skyggni og yfir hvilftina milli Úlfarsfells og Reykjafells.Ragnheiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri kveðst ekki geta svarað því hvort Mosfellingar myndu samþykkja flugvöll á Hólmsheiði. Hann yrði kannski ágætur með tilliti til þess að þarna yrði fjölmennur vinnustaður. Margt annað þyrfti að skoða. Hvernig yrðu aðflugsleiðir? Yrði flogið yfir Mosfellsbæinn og hvenær og hvernig? Ragnheiður segir málið ekki hafa verið rætt innan bæjarstjórnar. Persónulega kveðst hún þeirrar skoðunar að flugvöllurinn eigi að vera áfram í Vatnsmýri. Hún kveðst oft velta því fyrir sér hvaða land sé dýrmætt og hvaða land ekki. Á Hólmsheiði og þar í kring séu mörg falleg vötn, eins og Rauðavatn, Langavatn og Hafravatn. Þarna sé dýrmætt útivistarsvæði og spyrja megi hvort það sé ekki jafndýrmætt og annað land sem menn vilji setja undir byggð.
Mest lesið „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Hjólhýsabyggð færist á Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent Fleiri fréttir Hjólhýsabyggð færist á Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Sjá meira