Vilja friðargæsluliða heim frá Afganistan 27. nóvember 2007 15:31 MYND/GVA
Fjórir þingmenn Vinstri - grænna hafa lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að Alþingi feli utanríkisráðherra að kalla heim íslenska friðargæsluliða í Afganistan, sem þar starfa sem hluti liðsafla NATO. Jafnframt verði þátttaka Íslands í friðargæslu og verkefnaval endurskipulagt í samræmi við markmið nýrra laga um íslensku friðargæsluna. Enn fremur að utanríkisráðherra vinni að þeirri endurskipulagningu í nánu samráði við utanríkismálanefnd Alþingis. Í greinargerð með tillögunni er bent á að ekki sé ætlunin að fella neina dóma um þau störf sem íslenskir friðargæsluliðar hafa innt af hendi í Afganistan undanfarin ár en nú starfa þar um 15 manns. Tillagan byggist hins vegar á þeirri skoðun að forsendur fyrir dvöl íslensku friðargæslunnar í Afganistan verði að teljast lagalega afar hæpnar með tilliti til anda og markmiða nýrra laga um íslensku friðargæsluna.Íslenskir friðargæsluliðar starfi þar að verkefnum sem stjórnað er af Atlanshafsbandalaginu og beri a.m.k. sumir hverjir starfstitla í samræmi við hernaðarskipulag NATO. Átök fari nú harðnandi í Afganistan milli hersveita NATO og skæruliða talibana og fjöldi óbreyttra borgara sem fallið hafi í átökunum, einkum í loftárásum NATO, skipti þúsundum og aukist eftir því sem líður á stríðið. Loftárásirnar virðist koma að litlu gagni og ekki ná að binda endi á ófriðinn í landinu.Þá segir í greinargerðinni að NATO sé komið út í mikla ófæru í Afganistan sem eins konar upphreinsunardeild fyrir Bandaríkjamenn. Betra en ekki væri að draga íslensku friðargæsluliðana strax út úr samstarfinu við NATO og færa liðsaflann t.d. undir stjórn Sameinuðu þjóðanna í landinu. Langheppilegast væri þó að kalla einfaldlega liðsaflann heim, eins og tillagan geri ráð fyrir, og endurskipuleggja í framhaldinu alla framgöngu Íslands og verkefnaval á þessu sviði.
Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira