Ekkert lát á skemmdarverkum á strætóskýlum 27. nóvember 2007 12:45
Rúður í tuttugu strætóskýlum víða um borgina hafa verið mölbrotnar undanfarinn mánuð og veggjakrot á skýlum hefur aldrei verið meira. Tjónið hleypur á milljónum króna. Flest strætóskýli hafa verið skemmd í Hlíðarhverfinu. Skemmdarverk á strætóskýlum borgarinnar hafa aldrei verið meiri. Um fimmtíu rúður í skýlum hafa verið brotnar á mánaðartímabili. Lögregla leitaði í nótt tveggja ungra manna sem unnu skemmdarverk á strætisvagnaskýli við Grensásveg en fann þá ekki. Einar Hermannsson framkvæmdastjóri AFA sem rekur um 130 strætóskýli borgarinnar, segir 13-14 ára pilta vera þarna á ferðinni. Tjónið sem orðið hafi á rúmum mánuði nemi hátt í þremur milljónum króna. Fyrirtækið standi einnig ráðþrota gagnvart veggjakroti sem hafi færst í vöxt á þessu ári. Milljónir á ári fara í það að þrífa og mála krotið af. Einar segir eftirlit hafa verið hert á síðustu vikum og þá hafi dregið úr skemmdarverkunum. Tveir piltar um fjórtán ára aldur voru staðnir að verki við strætóskýli í Hafnarfirði fyrir skömmu. Þeir voru færðir til lögreglu og verða að öllum líkindum krafnir um skaðabætur. Fyrirtækið AFA er alþjóðlegt fyrirtæki og starfar í 3600 borgum um allan heim. Einar segir að Reykjavík og nágrenni sé yfirleitt með lægstu tíðni skemmdarverka.
Mest lesið Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Innlent Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Innlent „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Innlent Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Innlent „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Innlent Skipstjóri handtekinn í Reykjavíkurhöfn Innlent Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Innlent Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Innlent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ Innlent Ákvörðun dómsmálaráðherra gríðarleg vonbrigði Innlent Fleiri fréttir Engar skýringar frá saksóknara, Íslandsmet í umræðum og óvæntur hvalur Íslandsmet slegið í málþófi Ekið á sjö ára barn í Borgartúni Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Skorið á bönd palestínska og úkraínska fánans Konan er komin í leitirnar Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Alls 246 ökumenn sektaðir og átta sviptir vegna hraðaksturs Eldri borgarar skemmtu sér í múmínkastalanum Menn á sextugs- og sjötugsaldri grunaðir um stórfellt fíkniefnabrot Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Handviss um að Sjálfstæðisflokkurinn fái yfir þrjátíu prósent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Skráningargjöld, fylgistap og gettó á Gasa Bæjarráð Voga vill gera ráð fyrir flugvelli í Hvassahrauni Leggur til þjóðaratkvæðagreiðslu um bókun 35 Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Flugvél Play lenti í hagléli og þurfti að snúa við Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Óskar viðbragða ráðherra við löngum afgreiðslutíma Lögregla lýsir eftir heilabilaðri konu á Akureyri „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Vilja taka fjármálaáætlun til umræðu Einu verslun Þingeyringa lokað Aðsóknarmet slegið í lögreglunám Skipstjóri handtekinn í Reykjavíkurhöfn Ákvörðun dómsmálaráðherra gríðarleg vonbrigði Lögreglan lýsir eftir Hebu Ýr Öll tölfræði um málþófið á einum stað: Íslandsmet á næsta sólarhring Sjá meira