Flutningaskipið Axel gengur fyrir eigin vélarafli 27. nóvember 2007 10:48
Flutningaskipið Axel sem strandaði á Borgeyjarboða fyrir utan Höfn í Hornafirði upp úr klukkan átta í morgun er laust af skerinu. Þá hefur áhöfninni tekist að koma aðalvélinni í gang og er stefnt að því að sigla skipinu til Djúpavogs og láta kafara kanna skemmdir á botni þess. Einhver olía lak úr skipinu og fóru björgunarsveitarmenn frá Höfn á vettvang með flotgirðingu til að girða olíuflekkinn af. Hann reyndist mun minni en óttast var í fyrstu. Þá lak sjór inn í bógskrúfurými skipsins en því var lokað af. Ekki liggur fyrir hvort einhver sjór hefur komist í lestina en skipið er fulllestað af frosnum fiski. Við strandið drapst á aðalvélinni og og var þá til öryggis komið taug á milli lóðsbátsins frá Höfn og skipsins en ekki eru lengur not fyrir hana. Þá er varðskip á leið á staðinn til að fylgja skipinu til Djúpavogs. Engan úr ellefu manna áhöfn sakaði en skipstjórinn er íslenskur og aðrir frá Austur-Evrópu. Skipið var nýfarið frá Hornafirði áleiðis til Póllands þegar það strandaði. Engar upplýsingar hafa fengist um tildrög strandsins. Þá er ekki ljóst hvort það drapst á aðalvélinni áður en skipið strandaði eða þegar það gerðist. Axel, sem er í eigu íslensks skipafélags, Dreggs á Akureyri, hefur að undanförnu verið í ferðum á milli Íslands og meginlands Evrópu og gjarnan siglt beint á hinar ýmsu hafnir umhverfis landið og á milli þeirra.
Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira