Erlendir mótorhjólamenn spóla á hálendi Íslands 2. október 2007 18:45
Á sama tíma og sjóstangveiði er að vaxa sem grein í ferðaþjónustu er önnur ný í vexti sem reyndar hefur farið fram hjá flestum. Vélhjólamenn sem vilja vaða á vegleysur inn til fjalla eru nýr hópur ferðamanna sem á eftir að láta að sér kveða í íslenskri ferðaflóru. Stór hópur belgískra vélhjólakappa kom af hálendinu í borgina í gær og gáfu íslenskum vegum einkunn sem menn eiga ekki að venjast hér. "Þessir vegir eru frábærir," sagði Peter Thys forsprakki hópsins, sem taldi sjö ökuþóra en þeir voru í félagi við sænska vélhjólamenn. Hjólakapparnir eru vanir utanvegaakstri en sóru og sárt við lögðu að þeir hefðu aldrei farið út fyrir vegslóðana í ferð sinni á Íslandi. "Við fórum aldrei út af troðningunum, við berum virðingu fyrir náttúrunni og vitum að hún er viðkvæm," sagði Thys. Hópreið kappanna vakti athygli vegfarenda í Reykjavík enda eru hjólin þeirra frumstæð að sjá og líklegri til að glíma við torfærur og háskaslóðir til fjalla en asann í borginni. Þeir þurftu eiginlega að rétta út hönd til að beygja eins og títt er að menn geri á reiðhjólum. Belgísku hjólamennirnir fara árlega í reisur í Evrópu. Ísland er besta landið sem þeir hafa sótt heim. "Allt er á heimsmælikvarða á Íslandi," sagði Thys, "nema verðlagið." Hann hrósaði heita vatninu í hástert en sagðist hlakka til að fá sér belgískt súkkulaði og belgískan bjór við heimkomuna. "Ég mun mæla með Íslandi við hvern sem er," sagði Thys að lokum og brosti breitt.
Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Innlent Fleiri fréttir Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli 270 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Ástandið á bráðamóttökunni sýni viðkæmni kerfisins Sjá meira