Hagar mega ekki heita Hagar 8. janúar 2007 14:56 MYND/Heiða
Neytendastofa hefur bannað Högum hf., sem reka bæði Bónus, Hagkaup og 10-11 ásamt fjölda fataverslana, að nota nafnið Hagar. Það var heildsalan Hagi ehf. sem kvartaði til stofnunarinnar og vísaði meðal annars til þess að Hagi hefði verið stofnað og skráð hjá fyrirtækjaskrá 1993 en Baugur Ísland hf. hefði breytt nafni sínu í Hagar hf. árið 2003. Eftir að viðræður um kaup á firmanafninu Hagi ehf. báru ekki árangur hélt Baugur Ísland hf. áfram að nota nafnið Hagar. Kvartaði Hagi því til Samkeppnisstofnunar og taldi notkun Haga á firmanafninu ganga gegn ákvæði samkeppnislaga um óréttmæta viðskiptahætti þar sem ruglingshætta á firmanöfnunum væri veruleg. Þótt fyrirtækin ættu ekki í samkeppni yrði Hagi fyrir miklum óþægindum vegna þess hve lík nöfnin væru.Bentu Hagar hins vegar á að Hagi væri betur þekktur undir nafninu Hilti og að það nafn væri skráð í vörumerkjaskrá Einkaleyfastofu.Með breytingum sem urðu á lögum tengdum samkeppnismálum tók Neytendastofa við erindinu og í úrskurði sínum bendir stofnunin á að orðmynd heitanna sé sú sama í þolfalli og eignarfalli. Það eina sem greini þau að í þeim tilfellum sé skammstöfunin sem gefi til kynna að annað sé einkahlutafélag en hitt hlutafélag.Taldi Neytendastofa hafa verið sýnt fram að ruglingur hefði átt sér stað milli aðila þannig að póstsendingar hefðu ratað á rangan stað og aðilar ruglast á fyrirtækjunum í tengslum við fjölmiðlaumræðu. Var það því mat Neytendastofu að notkun Haga hf. á firmanafninu Hagar hf. væri brot á samkeppnislögum og Högum því bannað að nota nafnið Hagar.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fleiri fréttir Útför Björgvins Halldórssonar Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Sjá meira