Telur að verið sé að lauma inn einkavæðingu framhaldsskóla 29. nóvember 2007 15:23 Höskuldur Þórhalsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Höskuldur Þórhallsson, fulltrúi Framsóknarflokksins í menntamálanefnd Alþingis, telur að verið sé að lauma inn einkavæðingu framhaldsskóla með nýju frumvarpi menntamálaráðherra til laga um framhaldsskóla. Ráðherra kynnti frumvarpið ásamt þremur öðrum frumvörpum sem lúta að menntun í landinu í fyrradag. Höskuldur segir jákvætt að tekið sé á skólastigunum þremur í heild sinni og farið yfir inntak menntastefnunnar. Hins vegar setji hann spurningarmerki við ákvæði í lögum um framhaldsskóla sem kveður á um að starfrækja megi slíka skóla sem sjálfseignarstofnun, hlutafélag eða með öðru viðurkenndu rekstrarformi. „Ég tel að þarna sé verið að lauma inn einkavæðingu í framhaldsskólakerfinu þar sem hér er um nýmæli að ræða í lögum," segir Höskuldur. Hann vill að menntamálaráðherra skýri þetta vel fyrir menntamálanefnd. Aðspurður um önnur ákvæði laga um framhaldsskóla segir Höskuldur að það sé ágætt að verið sé að létta á miðsstýringu í kerfinu. Það sé hins vegar mjög á reiki hvað framhaldsskólanám eigi að vera langt. Sér finnist sem þetta feli í sér styttingu á framhaldsskólanum, en slík áform menntamálayfirvalda voru mjög umdeild fyrir nokkrum misserum. Hann bendir enn fremur á að það sé á reiki hversu margar einingar þurfi í stúdentspróf og auk þess vakni spurningar hvort háskólar landsins þurfi að fara bjóða upp á undirbúningsnám þar sem próf framhaldsskólanna verða ólík. Þá segir Höskuldur að óvissa ríki um það hversu mikið fjármagn fylgi þessum breytingum á skólakerfinu, til að mynda sjái hann engin merki um að tekið sé tillit til þessa í fjárlagafrumvarpi næsta árs. „Ég tel það algjörlega tímabært að hækka laun kennara og ég hefði viljað sjá þess merki í fjárlagafrumvarpi næsta árs," segir Höskuldur.
Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira