Fóru fram á frestun á 2. umræðu um fjárlög 29. nóvember 2007 11:48
Þingmenn Vinstri - grænna ítrekuðu á þingfundi nú fyrir hádegi að annarri umræðu um fjárlög næsta árs yrði frestað til morguns til þess að þeim gæfist ráðrúm til þess að kynna sér betur breytingartillögur meirihluta fjárlaganefndar. Þingmenn hafa í morgun deilt mjög undir liðunum um störf þingsins og fundarstjórn forseta. Þar hefur verið deilt um nýtt frumvarp um fundarsköp Alþingis og hversu stutt væri liðið frá því að breytingartillögum vegna fjárlagafrumvarps hefði verið dreift og þar til ætlunin væri að ræða þær. Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri - grænna, vakti athygli á því að breytingartillögum meirihluta fjárlaganefndar við fjárlagafrumvarp hefði verið dreift í gærkvöld eftir að flestir þingmenn hefðu verið farnir heim. Í skjóli myrkur hefði þingfundi verið haldið áfram og breytingartillögunum dreift. Fulltrúar Vinstri - grænna hefðu gagnrýnt þetta í gærkvöld og hefðu farið fram á það að annarri umræðu um fjárlagafrumvarpið yrði frestað fram á föstudag til þess að stjórnarandstaðan gæti farið betur yfir tillögurnar. Bað hann foresta Alþingis, Sturlu Böðvarsson, um að verða við þeirri bón. Sturla Böðvarson benti hins vegar á að frá því á mánudag hefðu ákvarðanir meirihluta fjárlaganefndar legið fyrir. Allar götur síðan hefðu þingfulltrúar í fjárlaganefnd getað farið yfir tillögurnar. Því gæti hann ekki séð að það hefði skort tíma til að undirbúa umræðuna. Fleiri þingmenn Vinstri - grænna kvöddu sér hljóðs og tóku undir áskorun Ögmundar. Gagnrýndu þeir meðal annars að löggjafarstarfið væri óvandað og sögðu ekki skynsamlega staðið að málum. Vildu þeir meðal annars fá svör við því hvort ekki væri afbrigðilegt að breytingartillögunum hefði verið dreift 12-13 klukkustundum áður en umræða ætti að fara fram. Alþingi hefur lengi verið veik stofnun Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, tók að hluta undir áhyggjur Vinstri - grænna benti á að önnur umræða væri í raun orðin síðasta umræða um fjárlög og því skipti miklu máli að vel væri til hennar vandað. Guðni sagði enn fremur í umræðunum að Alþingi hefði um langt skeið verið veik stofnun og hefði sætt sig við að heyra undir ríkisstjórnina. Breyta þyrfti þessu þannig að það væri forseti þingsins sem réði og ríkti á þinginu. Rétt fyrir klukkan tólf hófst svo 2. umræða um fjárlagafrumvarpið.
Mest lesið Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Fleiri fréttir Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Sjá meira