Mills og McCartney ná loks sáttum 13. mars 2007 07:00 Paul McCartney borgar Heather Mills 29 milljónir punda í uppgjöri vegna skilnaðarins.
Það hillir undir endalok skilnaðardeilu Paul McCartney og Heather Mills en breska sunnudagsblaðið News of the World greinir frá því að þau hafi náð samkomulagi. Samkvæmt frétt News of the World hefur Paul McCartney lagt fram tilboð sem hljóðar upp á 29 milljónir punda; tæpa fjóra milljarða íslenskra króna. Mills verða boðnir rúmir þrír milljarðar í eingreiðslu auk þess sem hún fær glæsivillu þeirra í St. John's Wood í London. News of the World hefur áður greint frá sáttaumleitunum McCartney því í janúar var hann sagður hafa boðið Mills 32 milljónir punda, eða rúma fjóra milljarða, auk tveggja húseigna. Má fastlega gera ráð fyrir að lögfræðingar McCartney meti dæmið þannig að vel hafi gengið í dómsölum undanfarnar vikur og að Mills hafi gert sér grein fyrir því að ef málið drægist á langinn gæti hún misst alla möguleika á að fá einhverja aura úr búi McCartney. Þá er jafnframt talið að Heather hafi látið undan í forræðisdeilunni yfir Beatrice, fjögurra dóttur þeirra. Vinum og vandamönnum Mills og McCartney ber ekki saman um hvort standi uppi sem sigurvegari. Úr herbúðum Mills heyrist sá orðrómur að McCartney vilji þagga niður í Mills í eitt skipti fyrir öll og koma í veg fyrir að hún leggi fram sannanir um heimilisofbeldið sem fyrirsætan hafi mátt þola. Starfsmenn McCartney láta hins vegar hafa eftir sér að Mills hafi gert sér grein fyrir fégræðgi sinni, hún hafi lítið sem ekkert til síns máls og að þess vegna vilji hún loksins ganga að samningaborðinu. „Lögfræðingar þeirra beggja hittast reglulega utan réttarsalsins og reyna til hins ítrasta að komast að samkomulagi," er haft eftir heimildarmanni News of the World. Heather Mills er sátt við samkomulagið en lofar því að hún muni ekki þegja yfir því ofbeldi sem Paul hafi beitt. Blaðið hefur eftir nánum vini bítilsins fyrrverandi að hlutirnir hafi tekið óvænta stefnu síðustu daga. Fyrst hafi Mills viljað fá svimandi háar upphæðir og fullt forræði yfir Beatrice. „Núna reiknum við hins vegar með því að semja við hana," lét þessi ónafngreindi maður hafa eftir sér. Innanbúðarmaður úr herbúðum Mills sagði hins vegar að Mills liti ekki á samkomulagið sem einhverja þöggun fyrir sig. Hún ætli sér að greina frá ofbeldishneigð og áfengisdrykkju Pauls. „Ég vil að breska þjóðin heyri sannleikann um Paul og hegðun hans," er haft eftir Mills. Þrátt fyrir að hjónakornin fyrrverandi hafi getað haldið ró sinni frammi fyrir dómara hefur blaðið eftir heimildarmönnum sínum að fúkyrðin gangi enn á milli. „Ég get ekki beðið eftir því að þurfa aldrei aftur að sjá smettið á þér," er Paul sagður hafa öskrað í síma en Mills ku hafa svarað að bragði: „Þú losnar aldrei við mig." Paul hefur jafnframt sagt við vini sína að hann búist við því að Mills eigi eftir að daga uppi sem einskisnýt raunveruleikaþáttarstjarna og líkti henni við Önnu Nicole Smith.
Mest lesið Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Lífið Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Lífið Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Lífið Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Lífið Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Lífið Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Tónlist „Það er engin skömm í krabbameininu“ Lífið Urður yfirgefur Kastljós Lífið María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu Tíska og hönnun Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Lífið samstarf Fleiri fréttir Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Sjá meira