Stutt kosningaþing hefst í dag 15. janúar 2007 11:37 MYND/Stöð 2
Alþingi kemur saman á ný í dag eftir fimm vikna jólahlé. Búast má við snarpri törn næstu tvo mánuði en gert er ráð fyrir að þinginu verði slitið óvenju snemma í ár, eða 15. mars, vegna alþingiskosninganna í vor.Tvö mál eru á dagskrá þessa fyrsta fundar Alþingis á árinu, frumvarp ríkisstjórnarinnar um Ríkisútvarpið og fylgifrumvarp þess um Sinfóníuhljómsveit Íslands, en djúpstæður ágreiningur er milli stjórnar og stjórnarandstöðu um hlutafélagsvæðingu Ríkisútvarpsins. Þingfundur hefst klukkan hálftvö og má búast við kraftmiklum umræðum, eins og raunar alla þá liðlega þrjátíu fundardaga Alþingis sem áformaðir eru næstu tvo mánuði. Þingstörfin næstu vikur munu án vafa bera skýr merki þess að Alþingiskosningar verða 12. maí og líklegt að þingmenn hafi notað langt jólafrí til að brýna klærnar fyrir kosningabaráttuna, en störfum þingsins fyrir jól lauk þann 9. desember. Umræðan um Ríkisútvarpið í dag er þriðja og síðasta umræðan um frumvarpið og má búast við að það verði lögfest á næstu dögum. Samkvæmt starfsáætlun þingsins er gert ráð fyrir að síðasti fundardagur verði 15. mars, og fá menn því tvo mánuði til að heyja kosningabaráttu utan þings.
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði Sjá meira