Fjórtán þúsund metnir með örorku 10. janúar 2007 18:22
Draga má þá ályktun að fleiri í hópi öryrkja hafi tiltölulega vægari heilsufarsvandamál en áður, segir fyrrverandi tryggingayfirlæknir, enda ekkert sem bendir til þess að heilsufari þjóðarinnar hafi farið hrakandi þótt enn fjölgi öryrkjum. Í nýrri úttekt í Læknablaðinu kemur fram að í árslok árið 2005 voru um 14 þúsund Íslendingar metnir með örorku Sigurður Thorlacius, fyrrverandi tryggingalæknir, einn þeirra sem vann að úttektinni segir skýringarnar ýmsar. Ekki síst sveiflur á atvinnustigi, hækkandi aldur þjóðarinnar og aukin krafa um afköst á vinnumarkaði sem hefur í för með sér að þeir sem eru veikir fyrir gefast upp. Áberandi munur er á stöðu karla og kvenna en átta prósent kvenna eru metnar með örorku á móti rúmum fimm prósentum karla og sem fyrr er örorka algengari í yngstu aldrushópum á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum. Enn er erfitt að benda á eina ástæðu en nefnt er í skýrslunni að minna sé hér um úrræði til starfsendurhæfingar fyrir yngri aldurshópa en í grannríkjunum. Þá er átt við ungt fólk sem stríðir við sjúkdóma, hefur litla menntun og því minni möguleika á vinnumarkaðinu. Stöðu þeirra þarf að bæta að mati Sigurðar. Aðspurður hvort nægilega sé aðgætt að félagskerfið sé ekki misnotað segir Sigurður að alltaf sé möguleiki á því. Hvert mál sé vandlega skoðað og það þurfi að liggja fyrir góðar upplýsingar um þá sjúkdóma sem fólk eigi að vera haldið til að fá örorku metna. Hins vegar bendi ekkert til að heilsufari þjóðarinnar fari hrakandi , heldur þvert á móti. Því megi draga þá alyktun að fleiri í hópi öryrkja séu með tiltölulega vægari heilsufarsvandamál en áður að sögn Sigurðar.
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði Sjá meira