Innlent

Peningamálastefnan bítur áfram, segir Seðlabankinn

Gengi krónunnar féll um tæp tvö prósent í dag vegna sterks orðróms um að Kaupþing hyggist færa uppgjör sitt yfir í evru. Kaupþingsmenn neita að tjá sig. Ingimundur Friðriksson seðlabankastjóri segir að peningamálastefnan muni hafa bit áfram, jafnvel þótt einhverjir viðskiptabankanna kjósi að gera reikninga sína upp í erlendum gjaldmiðlum.

Augu manna beinast nú að rá ðamönnum Kaupþings, stærsta banka landsins. Sjálfir neita þeir að tjá sig um áform sín en þeir sem til þekkja telja það aðeins spurningu um tíma hvenær bankinn stígur það skref að færa uppgjör sitt yfir í evrur. Heimildarmenn hallast jafnvel að því að það verði tilkynnt í lok þessa mánaðar, um leið og ársuppgjör bankans verður birt.

Greiningardeild Landsbankans vakti athygli í gær á gríðarlegri gjaldeyrissöfnun bankanna á undanförnum vikum, einkum Kaupþings, og taldi erfitt að sjá annan tilgang en þann að einn eða fleiri bankar væru í alvöru að undirbúa að yfirgefa krónuna sem uppgjörsmynt.

Seðlabankamenn telja þessa ályktun ekki sjálfgefna. Ingimundur Friðriksson segir að eðlilegar skýringar, tengdar áhættustýringu, geti legið að baki því að bankarnir byggi upp gjaldeyrisstöðu. Hann minnir á að vegna þess hve bankarnir séu orðnir stórir verði allar fjárhæðir mjög stórar, eðli málsins samkvæmt.

Spurður um hvaða afleiðingar það hefði ef einn eða fleiri viðskiptabankar tækju ákvörðun um að færa bókhald sitt í evrum, segir Ingimundur að það myndi ekki hafa nein sérstök áhrif í Seðlabankanum. Bankinn eigi sín viðskipti við lánastofnanir í krónum og á því verði engin breyting. Krónan yrði áfram megingjaldmiðilinn í viðskiptum bankanna. Peningamálastefna Seðlabankans muni því hafa bit áfram, jafnvel þótt einhverjir bankar kjósi að gera upp reikninga sína í erlendum gjaldmiðli, segir Ingimundur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×