Telja að ensím úr þorski geti nýst gegn fuglaflensu 16. janúar 2007 15:33 Jón Bragi Bjarnason með Pensímið sem fyrirtækið Zymetech hefur framleitt. MYND/GVA
Íslenska fyrirtækið Zymetech telur að ein af framleiðsluvörum þess, svokallað Pensím, geti hjálpað til í baráttunni við fuglaflensu. Þetta kemur fram í frétt breska dagblaðsins Times. Þar segir að vísindamenn við Háskóla Íslands hafi stofnað fyrirtækið árið 1996 en það hafi einbeitt sér að framleiðslu lyfja og snyrtivara úr þorskensímum. Þar á meðal sé Pensím sem reynst hafi vel gegn húðsjúksdómum eins og exemi og psoriasis. Haft er eftir Jóni Braga Bjarnasyni, prófessor í lífefnafræði og framkvæmdastjóra fyrirtækisins, að tilraunir hafi hins vegar leitt í ljós að pensím eyði 99 prósentum af H5N1-veirufrumum innan fimm mínútna. Niðurstöðurnar lofi mjög góðu sem þýði að hugsanlega verði hægt að nota ensímið til að þróa ný lyf gegn fuglaflensu.Samkvæmt Times leitar Zymetech nú fjármagns til að halda áfram tilraunum með Pensímið. Þarf fyrirtækið allt að tvo milljarða króna til þess og nýtur fyrirtækið aðstoðar Kaupþings og breska fyrirtækisins Ouri Clark við fjáröflunina. Ef niðurstöður verða áfram jákvæðar verður hugsanlega leitað eftir samstarfi við stórt lyfjafyrirtæki við frekari tilraunir og markaðsetningu lyfsins en það verður líklega ekki fyrr en eftir nokkur ár.Fram kemur að Jón Bragi hafi í nærri þrjá áratugi rannsakað ensím í fiskum en hann varð fyrst var við áhrif þeirra þegar hann vann sem sjómaður í hlutastarfi með námi á áttunda áratugnum.
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegt tímabil klárast á dögunum Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Sjá meira