Innlent

Fallið frá gæsluvarðhaldskröfu yfir manni vegna bruna

Lögreglan á Selfossi féll í gær frá kröfu sinni um að þriðji maðurinn yrði úrskurðaður í gæsluvarðahald í tengslum við eldsvoða í parhúsi í Þorlákshöfn um helgina. Að sögn lögreglu þróaðist málið á þann veg í dag að ekki þurfti að fara fram á gæsluvarðhald yfir manninum. Tvennt var úrksurðað í gæsluvarðhald í fyrradag vegna málsins, karlmaður sem handtekinn í Reykjavík þar sem hann var að nota greiðslukort eiganda hússins og sambýliskona eftir að þýfi úr brunna húsinu fannst í fórum hennar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×