Fleiri hafernir er nokkrum sinnum fyrr í talningu 22. janúar 2007 20:11
Fleiri hafernir, tólf talsins, sáust en nokkru sinni áður í hinni árvissu vetrarfuglatalningu Náttúrufræðistofnunar sem fram fór í byrjun mánaðarins. Sáust þeir allt frá Meðallandi í austri, vestur og norður um til Vestfjarða. Talið var á um 150 einstökum svæðum um land allt og hafa niðurstöður þegar borist frá 132 svæðum. Fram kemur á vef Náttúrufræðistofnunar að skráðir hafi verið 112 þúsund fuglar af 75 tegundum og bendir flest til þess að tegundirnar verði nokkru færri en undanfarin ár og munar þar mestu um þann fjölda flækingsfugla sem kemur fram hverju sinni. Æður er langalgengust fugla hér á landi sem sem fyrr en óvenju fáir snjótittlingar sáust eins og jafnan þegar snjór er lítill. Þá sáust óvenjumargar súlur en þær koma yfirleitt að landinu síðla í janúar. Meðal sjaldgæfra fuglategunda má nefna hvítönd í Meðallandi og kúfönd á Sogi en sú síðarnefnda er sárasjaldgæfur flækingur frá Norður-Ameríku og er afar lík duggönd. Alls tóku um 130 manns þátt í talningunni og voru það allt sjálfboðaliðar eins og ávallt í sögu þessara talninga. Enn fremur kemur fram á vef Náttúrufræðistofnunar að nokkuð af olíu hafi farið í sjóinn þegar Wilson Muuga strandaði við Hvalsnes skömmu fyrir jól en olían virtist hafa brotnað fljótt niður og menn urðu ekki varir við olíublauta fugla í kjölfarið. Aðeins einn olíublautur æðarfugl sást í Ósum við Hafnir en slíkir fuglar sjást yfirleitt í hverri talningu, án þess að stórslys hafi orðið.
Mest lesið Reynslubolti kveður lögregluna Innlent Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Erlent Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Innlent Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Erlent Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Erlent Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Erlent Starfslokasamningar undirstofnana kostað hátt í 175 milljónir Innlent Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Erlent Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Innlent Þrír karlmenn handteknir fyrir þjófnað í Laugarneshverfi Innlent Fleiri fréttir Fjögur vilja stöðu ríkislögreglustjóra Þrír karlmenn handteknir fyrir þjófnað í Laugarneshverfi Starfslokasamningar undirstofnana kostað hátt í 175 milljónir Reynslubolti kveður lögregluna Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Magnús Þór sjálfkjörinn Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Selfyssingar í 60 plús heilsueflingu klárir í jólin Skoða að koma á ferjusamgöngum milli Skotlands og Seyðisfjarðar Viðreisn gæti reynst í lykilstöðu milli blokkanna Frumvarp um kílómetragjald samþykkt og þingmenn komnir í jólafrí Barnavernd fylgist með fleiri ófrískum konum í neyslu en síðustu ár Fleiri óléttar konur í neyslu á borði barnaverndar og spennandi kosningar framundan Langvarandi einangrun ungrar konu gagnrýnd af Amnesty Selfoss stöðvaður í Bretlandi Þrettán nýir rafknúnir strætisvagnar teknir í notkun Zuism tekið af trúfélagaská eftir áralöng svik og pretti Mun áfram leiða lista Framsóknar í Múlaþingi Töpuðu 133 milljónum króna á kosningaári Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Samþykktu tillögu um uppbyggingu á Sorpu-lóð við Dalveg Spurningum Sigmundar Ernis svarað og málið ekki aftur í nefnd Þingstörfin á lokametrunum og styttist í jólafrí Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Taka enn tuttugu þúsund króna beygju Ekið á kyrrstæðan bíl á Suðurstrandarvegi Sjá meira