Innlent

Stórsigur Vinstri grænna

Vinstri grænir verða í lykilstöðu við myndun ríkisstjórnar að loknum kosningum, verði úrslit þeirra eins og könnun Fréttablaðsins gefur til kynna.Samfylkingin bíður afhroð samkvæmt könnuninni enIngibjörg Sólrún Gísladóttir, formaðurflokksins er sannfærð um að þetta verði ekki úrslit kosninga.

Framsóknarflokkurinn fengi aðeins fjóra þingmenn samkvæmt könnun Fréttablaðsins sem birt var um helgina.

"Þetta veldur okkur miklu áhyggjum og hefur gert um langt skeið, eða allt frá síðla á árinu 2004 þegar skoðanakannanir sýndu að Framsóknarmenn voru að missa frá sér fylgi. En þetta sýnir okkur tvennt. Í fyrsta lagi að verkefnið er allt framundan og í öðru lagi að við erum flokkur sem verður að vinna til fylgisins í hverjum kosningum," segir Jón Sigurðsson formaður Framsóknarflokksins.

Vinstri Grænir vinna mest á í könnun Fréttablaðsins og fá 19,4 prósent atkvæða og tólf þingmenn.

"Ef þetta yrði niðurstaðan eða eitthvað í líkingu við þessa niðurstöðu, þá myndi það verða og verður stórsigur Vinstri grænna sem fellir ríkisstjórnina. Það er alveg ljóst. Og í því eru náttúrlega fólgin alveg geysilega sterk skilaboð frá þjóðinni um stefnubreytingu," segir Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna.

Samfylkingin tapar hins vegar mestu fylgi og myndi missa sex þingmenn af 20 frá síðustu kosningum ef þetta yrði niðurstaðan í vor.

Ég er alveg sannfærð um að þetta verður ekki niðurstaðan. Samfylkingin hefur auðvitað verið að setja mörg mál á dagskrá. Hún kemur vel nestuð til kosninganna og þetta er einfaldlega ögrun og sýnir að við þurfum að koma okkar skilaboðum betur á framfæri," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×