Stórsigur Vinstri grænna 22. janúar 2007 18:30
Vinstri grænir verða í lykilstöðu við myndun ríkisstjórnar að loknum kosningum, verði úrslit þeirra eins og könnun Fréttablaðsins gefur til kynna.Samfylkingin bíður afhroð samkvæmt könnuninni enIngibjörg Sólrún Gísladóttir, formaðurflokksins er sannfærð um að þetta verði ekki úrslit kosninga. Framsóknarflokkurinn fengi aðeins fjóra þingmenn samkvæmt könnun Fréttablaðsins sem birt var um helgina."Þetta veldur okkur miklu áhyggjum og hefur gert um langt skeið, eða allt frá síðla á árinu 2004 þegar skoðanakannanir sýndu að Framsóknarmenn voru að missa frá sér fylgi. En þetta sýnir okkur tvennt. Í fyrsta lagi að verkefnið er allt framundan og í öðru lagi að við erum flokkur sem verður að vinna til fylgisins í hverjum kosningum," segir Jón Sigurðsson formaður Framsóknarflokksins.Vinstri Grænir vinna mest á í könnun Fréttablaðsins og fá 19,4 prósent atkvæða og tólf þingmenn."Ef þetta yrði niðurstaðan eða eitthvað í líkingu við þessa niðurstöðu, þá myndi það verða og verður stórsigur Vinstri grænna sem fellir ríkisstjórnina. Það er alveg ljóst. Og í því eru náttúrlega fólgin alveg geysilega sterk skilaboð frá þjóðinni um stefnubreytingu," segir Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna.Samfylkingin tapar hins vegar mestu fylgi og myndi missa sex þingmenn af 20 frá síðustu kosningum ef þetta yrði niðurstaðan í vor.Ég er alveg sannfærð um að þetta verður ekki niðurstaðan. Samfylkingin hefur auðvitað verið að setja mörg mál á dagskrá. Hún kemur vel nestuð til kosninganna og þetta er einfaldlega ögrun og sýnir að við þurfum að koma okkar skilaboðum betur á framfæri," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar.
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Fleiri fréttir Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Sjá meira