Innlent

Ölvunarakstur endaði í snjóskafli

MYND/Róbert
Lögreglan á Selfossi handtók tvo menn í nótt vegna gruns um ölvunarakstur eftir að bifreið þeirra fór út af Gaulverjabæjarvegi á móts við Glóru og endaði í snjóskafli.

Mennirnir voru að koma af veitingastaðnum Kríukránni en náðu ekki beygjunni inn á þjóðveginn og fór bifreið þeirra þvert yfir veginn og staðnæmdist í skaflinum þar sem hún sat pikkföst. Við yfirheyrslu viðurkenndi annar mannanna að hafa setið undir stýri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×