Innlent

Millilandaflug eyskt um 10 prósent á fyrsta ársfjórðungi

Millilandaflug um Keflavíkurflugvöll jókst um tíu prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Fram kemur á heimasíðu Flugmálastjórnarinnar á Keflavíkurflugvelli að flugvélum í almennu flugi hafi fjölgað um 15 prósent en viðkoma herflugvéla hefur minnkað lítillega þegar frá eru taldar herflugvélar í millilandaflugi tengdu varnarliðinu á síðasta ári. Farþegafjöldi jókst á sama tíma um tæp 11 prósent eða úr 121 þúsundum í 135 þúsund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×