Gylfi gagnrýnir vinnubrögð KSÍ 9. janúar 2007 20:30 Gylfi Orrason mynd/gva
Gylfi Orrason knattspyrnudómari gefur lítið fyrir þær fullyrðingar knattspyrnusambands Íslands að sambandið hafi reynt til fullnustu að fá Kristin Jakobsson hækkaðan um styrkleikalista dómara hjá UEFA. Formaður KSÍ kveðst sár yfir fréttaflutningi þessa efnis. Eins og fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gær varð ekkert af því að Kristinn yrði færður upp í B-flokk dómara nú um áramótin eins og vonir stóðu til en dómarar í þeim flokki dæma á meðal þeirra bestu, m.a. í Meistaradeildinni. Þetta olli talsverðum vonbrigðum meðal þeirra dómara sem íþróttadeildin ræddi við. Kristinn sjálfur neitar enn staðfastlega að tjá sig um málið opinberlega en Gylfi Orrason segir að í raun hefði KSÍ með meiri vilja að vopni getað þrýst á að koma Kristni upp um flokk. "Menn eiga náttúrulega bara að berja í borðið og skella hurðum til að fá þetta í gegn" sagði Gylfi meðal annars í viðtali við Stöð 2 í kvöld. Gylfi tók einnig fram að dómarar sem dæmt hefðu með Kristni á heimsmeistamóti landsliða undir 19 ára í Póllandi á síðasta ári hefði flestir hverjir komnist upp í B-flokk dómara nú um áramótin og þar með skotist upp fyrir Kristin. Gylfi sagði að allir þeir dómarar væru með lægri einkunnagjafir fyrir dómagæslu sína en Kristinn sem var verðlaunaður fyrir frammistöðu sína á mótinu með því að hann var látinn dæma úrslitaleikinn. Eggert Magnússon formaður KSÍ vildi ekki veita viðtal vegna málsins í dag en vildi koma á framfæri að hann væri sár yfir því að haldið skuli vera fram að hann hafi ekki gert nóg í málum Kristins. Hann hafi gert meira en eðlilegt þyki sem meðlimur í framkvæmdastjórn UEFA og formaður KSÍ til þess að fá Kristin hækkaðan um styrkleikaflokk.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Hulda Clara fagnaði sigrinum með því að hoppa út í vatnið Golf Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Fleiri fréttir „Eitthvað þarf að breytast fyrir næsta leik“ „Smá þolinmæði sem þarf“ „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu Á sársaukafullar minningar af HM Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Sjá meira