Innlent

Mýrin orðin mest sótta íslenska myndin

Úr kvikmyndinni Mýrinni.
Úr kvikmyndinni Mýrinni.

Mýrin, kvikmynd Baltasars Kormáks sem byggð er á spennusögu Arnaldar Indriðasonar, er orðin mest sótta íslenska myndin frá því að mælingar hófust og sömuleiðis sú tekjuhæsta á Íslandi hvort sem horft er til íslenskra eða erlendra mynda. 82.500 manns hafa nú séð Mýrina frá því hún var frumsýnd 20. október. Fyrra metið átti myndin Englar alheimsins sem frumsýnd var 1999. Hana sáu tæplega 82.250.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×