Keppt í ellefu greinum 23. mars 2007 06:00
Kringlan verður undirlögð hefilbekkjum, hárblásurum og heftibyssum í dag, þar sem hún hýsir Íslandsmót iðnnema. 75 keppendur frá tólf skólum keppa í ellefu iðngreinum. „Þetta er þriðja árið sem Íslandsmótið er haldið með þessum hætti, í verslunarmiðstöð. Það er gert með það fyrir augum að leyfa almenningi að njóta þess betur. Áður var það haldið inni í skólunum," sagði Gyða Dröfn Tryggvadóttir hjá Mennt, sem sér um skipulagningu mótsins í þriðja sinn í ár. Keppnin fer fram á Degi iðn- og starfsmenntunar, en þetta er annað árið í röð sem sá dagur er í heiðri hafður. „Þetta á eftir að byggja meira upp og gera sýnilegra," sagði Gyða. Markmið dagsins er einmitt að kynna iðngreinar, gera þær sýnilegri og bæta ímynd þeirra. „Það hefur heilmikið gerst og breyst á síðustu árum. Það hefur líka þurft að bæta ímynd greinanna og þetta er einn liður í því. Enn er mikil áhersla á bóknám, svo það þarf að vekja frekari athygli á iðn- og starfsnámi," sagði hún. Keppendur á Íslandsmótinu eru undir 22 ára aldri og keppa í jafn fjölbreyttum greinum og málmsmíði, málun, hársnyrtingu, grafískri miðlun og ljósmyndun, svo eitthvað sé nefnt. „Grafísk miðlun og ljósmyndun eru nýjar greinar frá því í fyrra. Keppendur í þeim verða saman í liði og verður falið að hanna plakat. Ljósmyndarinn tekur myndir og miðlarinn á að setja plakatið upp," útskýrði Gyða. Grafísk miðlun er jafnframt dæmi um þá þróun sem hefur átt sér stað innan iðnnámsins. „Greinarnar þróast og breytast. Grafísk miðlun hét prentsmíð áður, en í henni voru ekki notaðar tölvur. Þetta breytist allt með tilkomu nýrrar tækni," sagði Gyða. Keppni lýkur klukkan fjögur í dag. Klukkan 17.30 mun Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, afhenda sigurvegurum verðlaun sín. Kynnir er Gunnlaugur Helgason útvarpsmaður.
Mest lesið Trylltist þegar hún varð fyrir árás byssumanna í Ríó Lífið Segir af sér eftir að Coldplay kom óvart upp um framhjáhaldið Lífið Stór saga í litlum umbúðum: „Barnæskan mín er greypt í minnið“ Lífið „Nú eruð þið farin að draga mig aftur inn í pólitíska umræðu“ Lífið Ingvar E. valinn besti leikarinn í Grikklandi Bíó og sjónvarp Millie Bobby Brown í hóp Íslandsvina Lífið Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Lífið Krakkatían: Barbie, forseti og flugstöð Lífið Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Óskandi að það væru fleiri börn með Downs á Íslandi Lífið Fleiri fréttir Millie Bobby Brown í hóp Íslandsvina Stór saga í litlum umbúðum: „Barnæskan mín er greypt í minnið“ Segir af sér eftir að Coldplay kom óvart upp um framhjáhaldið Trylltist þegar hún varð fyrir árás byssumanna í Ríó Krakkatían: Barbie, forseti og flugstöð Charli xcx gifti sig „Nú eruð þið farin að draga mig aftur inn í pólitíska umræðu“ Óskandi að það væru fleiri börn með Downs á Íslandi Fréttatía vikunnar: Eldgos, heimsókn Ursulu og frægur gítar Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Stjórn fyrirtækisins hefur formlega rannsókn Bragason leikur Zeldu prinsessu Borgarbörnin orðin sveitaballasjúk: „Ef þú ferð þangað sérðu ekki einn síma á lofti“ Næturskrunið eyðileggi svefninn og ungmennin vansvefta Ótrúleg upplifun að vera í algjöru myrkri á tónleikum Tognaður í báðum lærum og blöðrur á öllum tám Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Coldplay kom óvart upp um framhjáhald forstjórans Útilokar fimmta hjónabandið: „Ég held ég sé búinn með það“ Sýnishorn úr nýjustu mynd Hlyns Pálmasonar Pete Davidson að verða pabbi: „Nú vita allir að við sváfum saman“ Af hverju vinkar Teslan alltaf á sama stað? Connie Francis er látin „Maður þarf alltaf að hafa augun opin“ „Ég gat ekki haldið aftur tárunum“ Birta og Króli eiga von á dreng Sumarlegt og ofurhollt kínóasalat að hætti Jönu Emma Watson svipt ökuleyfinu Yngsti gusumeistari landsins Sjarmerandi raðhús í 105 Sjá meira