Eva Ásrún syngur bakrödd í Framsókn 23. mars 2007 09:30 Hefur hingað til farið leynt með sterkar pólitískar skoðanir en nú á að reisa Framsókn úr öskustónni. MYND/Vilhelm „
Það var bara leitað til mín. Og ég á lausu. Mjög spennandi verkefni,” segir Eva Ásrún Albertsdóttir, sem hefur verið ráðin kosningastjóri Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Framsóknarflokkurinn er þekktur fyrir það að rísa úr öskustónni þegar líður að kosningum. Og víst er að klókt má teljast hjá forráðamönnum flokksins að hafa dregið Evu Ásrúnu á flot en hún hefur hingað til ekki verið þekkt af pólitískum afskiptum heldur landskunn fyrir að hafa starfað í útvarpi hjá RÚV og ekki síður sem söngkona. Hún hefur margoft lagt keppendum í Eurovision lið með frábærum bakröddum. Aðspurð hvort hún sé framsóknarmaður segir hún svo vera. Að sjálfsögðu. Hún hefði ekki tekið þetta að sér ef svo væri ekki. „Enda af mjög öflugum framsóknarættum. Við Guðmundur Bjarnason fyrrverandi ráðherra erum náskyld og Dagný Jóns er frænka mín líka.” Eva Ásrún á ættir að rekja um Norðausturkjördæmi þvert og endilangt, móðir hennar er úr Þingeyjarsýslu og faðir frá Eskifirði. Þessi sambönd hyggst Eva Ásrún nýta í komandi baráttu. „Ég hef ekki staðsett mig í pólitík hingað til. Hef ekki verið í aðstöðu til þess meðal annars vegna starfa í fjölmiðlum. Og þetta hefur ekki verið vettvangur sem ég hef sóst eftir að fara inná,” segir Eva Ásrún. En nú er rétti tíminn. Hún segist alltaf hafa haft sterkar pólitískar skoðanir og þarna hefur hjartað slegið. Eva Ásrún segir Framsóknarflokkinn án efa þann söngglaðasta og skemmtilegasta og á fundum verður bryddað upp á ýmsum nýjungum. Eva Ásrún hvetur menn til að mæta. Og hún hefur enga trú á að kostningar fari eins og skoðanakannanir gefa til kynna. „Ég mun sanna það í Norðausturkjördæmi. Og hana nú!”
Mest lesið Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Lífið Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Lífið Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Lífið Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Lífið „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ Lífið Risastór menningarhátíð á Flateyri Menning Bestu hlutverk Michaels Madsen: Óþokki með viskýrödd og uppáhald Tarantino Bíó og sjónvarp Tímalausar og fallegar brúðargjafir Lífið Drottningar landsins kjörnuðu sig með Ernu Bergmann Tíska og hönnun Ofboðslega falleg berskjöldun Menning Fleiri fréttir Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Krakkatían: Tölur, mýs og tónlist Julian McMahon látinn Var orðið að spurningu um líf og dauða Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar Umboðsmaður Jenner lést af slysförum „Þvílíkur fílingur bara“ „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Rósa og Hersir orðin foreldrar Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Staðfesta sambandsslitin Ætla að synda frá Elliðaey til Heimaeyjar Michael Madsen er látinn Kvenorkan tók yfir á Garðatorgi Sjá meira