Klórleki alltaf alvarlegur Jón Hákon Halldórsson skrifar 4. desember 2007 21:03 Mynd úr safni.
Tryggvi Þórðarson, vatnavistfræðingur hjá rannsókna- og fræðasetri Háskóla Íslands í Hveragerði, segist lítið geta tjáð sig um það hvaða áhrif klórlekinn í Varmá geti haft á vistkerfið í ánni en áhrif slyssins verði rannsökuð á næstu dögum. Talið er að allt að 800 lítrar af klór hafi lekið í Varmá síðastliðinn föstudag þegar geymir lak. Tryggvi bendir á að sambærilegt slys hafi orðið árið 1994 þegar klór úr Árbæjarlaug lak í Elliðaárnar. „Þá varð talsverður seyðadauði og ánadauði á afmörkuðum hluta árinnar," segir hann. Tryggvi telur þó að mun meiri klór hafi lekið í Varmá nú en lak í Elliðaárnar á sínum tíma. Jón S. Ólafsson, líffræðingur hjá Veiðimálastofnun, segir að klórlekar séu alltaf alvarlegir. „Þetta gæti þó hafa verið verra, til dæmis ef olía hefði lekið í ána," segir Jón. Hann segir að ef vistkerfi árinnar sé undir miklu álagi eins og hafi verið í tilfelli Elliðaánna og um sé að ræða síendurtekna atburði geti klórlekar haft skelfilegar afleiðingar. „Ef það væru til dæmis nokkrir lítrar að leka vikulega væri þetta mjög alvarlegt. Þegar um er að ræða eitt einangrað tilfelli þarf þetta ekki að verða eins alvarlegt," segir Jón. Hann segir að búast megi við því að þörungar, sniglar og smálífverur sem ekki geti fært sig úr stað drepist. „En seyðin geta fært sig úr stað og drepast því síður," segir Jón.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Innlent Fleiri fréttir Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Sjá meira