800 lítrar af klór láku úr klórgeymi í Hveragerði 4. desember 2007 20:05
Tappi í klórgeymi við Sundlaugina í Laugaskarði gaf sig aðfararnótt föstudagsins síðasta með þeim afleiðingum að umtalsvert magn af klór lenti í læk sem rennur í Varmá. Klórgeymirinn var í öryggiskari sem brást þegar á reyndi. Áætlað er að magn klórs í geyminum geti hafa verið um 800 lítrar en fyllt var á hann daginn áður en lekinn varð. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, segir að sú áfylling tengist ekki lekanum á nokkurn hátt. Starfsfólk sundlaugarinnar varð vart við lekann á föstudagsmorgunn en gerði sér ekki grein fyrir alvarleika málsins. Bæjaryfirvöldum var því ekki kunnugt um málið fyrr en í morgun eftir að bera fór á dauðum fiskum í ánni. Allir 800 lítrarnir láku úr gámnum en um 100 metrar eru þaðan að Varmá og því erfitt að áætla hversu mikið af klórnum lak í ánna. Samstundis var boðað til fundar með fulltrúum Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Vinnueftirliti ríkisins, vatnalíffræðingi frá Rannsókna og fræðasetri Háskóla Íslands í Hveragerði, forstöðumanni sundlaugar, skipulags- og byggingafulltrúa og bæjarstjóra. Á fundinum var farið yfir stöðu málsins, viðbrögð og aðgerðir. Búið er að gera við klórgeyminn og hefur verkfræðistofu verið falið að gera úrbótaáætlun svo atburðir sem þessir endurtaki sig ekki. Ennfremur hefur vatnalíffræðingi verið falið að rannsaka lífríki árinnar til að kanna hvaða áhrif atburðurinn hefur haft á það. Veiðimálastofnun hefur ennfremur verið upplýst um málið. Aldís segir að að svo stöddu sé ekki hægt að fullyrða um áhrif atburðarins á lífríki árinnar hvorki til lengri eða skemmri tíma. Hún segist líta þennan atburð mjög alvarlegum augum.
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Sjá meira