Ráðherra kynnti sér barnaklámseftirlit í Noregi 4. desember 2007 15:53 Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra. MYND/Pjetur
Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, sat í dag fund með kollegum sínum frá Noregi og Finnlandi, í höfuðstöðvum norsku rannsóknarlögreglunnar, KRIPOS, í Ósló. Auk ráðherranna tóku yfirmenn norsku lögreglunnar og norrænir embættismenn, þátt í fundinum. Knut Storberget, dómsmálaráðherra Noregs bauð til ráðherrafundarins í því skyni að kynna ráðherrunum frá fyrstu hendi hvernig KRIPOS stundar eftirlit með barnaklámi á netinu. Norðmenn hafa verið brautryðjendur í norrænu samstarfi á þessu sviði og hafa lagt á ráðin um formlegt norrænt lögreglusamstarf um netvörslu í þágu barna og ungmenna. „Þá kynnti norski ráðherrann reynslu Norðmanna af sérstöku hegningarlagaákvæði gegn nettælingu gagnvart börnum eða því, sem nefnt er „grooming" á alþjóðamáli," segir í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu. Þar segir einnig að fram hafi komið að erfitt getur verið fyrir lögreglu að beita nettælingarákvæðinu í framkvæmd. Danir og Íslendingar greindu frá því á fundinum, að því er fram kemur í tilkynningunni, að hjá þeim yrði látið reyna á tilraunaákvæði almennra hegningarlaga í tilvikum sem þessum, en þau eru víðtækari en í norskum lögum. „Þess er beðið hér á landi, að hæstiréttur felli dóma í málum, sem kunna að gefa til kynna hvernig rétturinn lítur á tilraunaákvæðið í þessu sambandi." Þá kom fram að á fundinum hafi verið lýst áhuga á því að nýta sér reynslu Norðmanna af svonefndri „Virtuell politistasjon" eftir því sem lög einstakra landa leyfðu. Aðeins er unnt að halda uppi eftirliti og síu lögreglu á netinu í náinni samvinnu við netþjónustuaðila. Hér á landi hefur embætti ríkislögreglustjóra stofnað til slíks samstarfs. Norrænn gagnagrunnur í samvinnu við gagnagrunna Europol og Interpol er talinn geta auðveldað þetta forvarna- eða eftirlitsstarf lögreglu. Norsku lögregluforingjarnir sögðu, að með netsíðusíum og svonefndum stopp-síðum væri unnt að ná verulegum árangri í baráttunni við netvædda barnaníðinga. Þá var það einnig mat þeirra, að umfang þessarar starfsemi í netheimum væri innan þeirra marka, að unnt væri að halda henni í skefjum með viðeigandi gagnráðstöfunum, sem hlytu að byggjast á víðtæku alþjóðlegu samstarfi.
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira