Dæmdur fyrir að aka undir áhrifum fjölmargra fíkniefna 18. apríl 2007 12:03 Var undir áhrifum fjögurra mismunandi fíkniefna. MYND/365
Karlmaður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands til að greiða 180 króna sekt í ríkissjóð fyrir meðal annars brot gegn fíkniefna- og umferðarlögum. Maðurinn keyrði undir áhrifum fjölmargra fíkniefna frá Ölfusborgum í átt að Reykjavík en endaði úti í hrauni á Hellisheiðinni. Það var í septembermánuði í fyrra að maðurinn ók bifreið sinni frá Ölfusborgum, vestur Suðurlandsveg áleiðis til Reykjavíkur. Var hann án ökuréttinda og auk þess undir áhrifum MDMA, kókaíns, amfetamíns og tetrahýdrókannabínóls. Á miðri Hellisheiðinni ók maðurinn útaf og endaði úti í hrauni þar sem bifreiðin skemmdist talsvert. Við leit á ákærða fann lögreglan 1,09 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni og 5,56 grömm af amfetamíni. Þá var manninum gert að hafa, ásamt sambýliskonu sinni, stolið hjólbarða af bifreið sem stóð á plani fyrir utan lögreglustöðina á Selfossi. Dekkið setti hann síðan undir sinn eigin bíl og nýtti sér það þangað til lögreglan í Hafnarfirði stöðvaði hann hálfum mánuði seinna og haldlagði umræddan hjólbarða. Í dómsorði kemur fram að ekki þótti sannað með nægjanlegum hætti að maðurinn hefði stolið hjólbarðanum og var hann því sýknaður af þeirri ákæru. Sambýliskonu mannsins var gert að greiða 50 þúsund krónur í sekt. Bæði hafa þau komist í kast við lögin áður.
Mest lesið Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Erlent Quang Le stefnir Landsbankanum Innlent Kosti þrjár milljónir fyrir alþjóðlega nemendur að læra á Íslandi Innlent Fékk milljón vegna afmælis kattarins Innlent Biður þingmenn að gæta orða sinna Innlent „Ísland á betra skilið“ Innlent Faðirinn ákærður fyrir að beita Oscar ofbeldi Erlent Hrókeringar í þingnefndum og Grímur segir af sér Innlent Ellefu vilja vera ritstjóri Kveiks Innlent Óásættanlegt hversu margir falla fyrir eigin hendi Innlent Fleiri fréttir Kosti þrjár milljónir fyrir alþjóðlega nemendur að læra á Íslandi Quang Le stefnir Landsbankanum Fékk milljón vegna afmælis kattarins Ríkisstjórnin feli sig á bak við mistök þeirrar fyrri Um 100 þúsund lömbum slátrað hjá SS á Selfossi „Ísland á betra skilið“ Biður þingmenn að gæta orða sinna Stefnuræða forsætisráðherra á dagskrá í kvöld Óásættanlegt hversu margir falla fyrir eigin hendi Áhyggjuefni að menn missi stjórn á atburðarásinni Fundu fyrir jarðskjálfta í Hveragerði Kærður fyrir fjársvik fyrir að neita að borga Einbeittur brotavilji og óásættanlegur fjöldi sjálfsvíga Ellefu vilja vera ritstjóri Kveiks Samfélagslega mikilvæg innviðafjárfesting að efla íslenska tungu Alþingi efnir til stefnuræðubingós Stúdentar klóra sér í kollinum yfir hækkun Loga Húsbrot á höfuðborgarsvæðinu: Oft sama fólkið sem brýst ítrekað inn í fleiri fjölbýlishús „Sérstök“ ræða forseta sem hafi hoppað á umræðuvagninn Segir gott að brugðist var við með valdi og NATO þurfi að sýna styrk Stilltu til friðar á óformlegum fundi í gær Talinn ógn við samfélagið og vísað úr landi Hugsanlega verið að reyna á einingu NATO-ríkja Hrókeringar í þingnefndum og Grímur segir af sér Rússneskir drónar í pólskri lofthelgi og „sérstök“ ræða forseta Íslands Tekist á um hvort framlag í séreign sé launagreiðsla Mikill meirihluti óánægður með leigubílamarkaðinn „Ég hef alveg heyrt mun verri hugmyndir en þetta“ Stjórnarandstaðan þurfi ný tæki í hendur eftir darraðardans sumarsins Með töskurnar fullar af marijúana Sjá meira