Meinað að fermast í Digranessókn þar sem móðirin var í Fríkirkjunni 11. apríl 2007 20:03
Unglingsstúlku var í haust meinað að fermast í Digranessókn vegna þess að móðir hennar er í Fríkirkjunni. Móður stúlkunnar var tilkynnt að ef hún gengi úr Fríkirkjunni fengið barnið að fermast, annars ekki. Presturinn, séra Magnús Björnsson, býður Fríkirkjuprestinum, Hirti Magna Jóhannssyni, í kaffi til að semja um þessi mál. Fréttastofa hefur í dag rætt við nokkra einstaklinga sem segja sínar farir ekki sléttar af samskiptum við presta í Kópavogi vegna tengsla viðkomandi við Fríkirkjuna. Þeirra á meðal er fjögurra barna móðir, Sigríður Sigmarsdóttir, sem hringdi í haust í séra Magnús Björnsson í Digraneskirkju til að skrá dóttur sína í fermingarfræðsluna. Hún kveðst hafa gloprað því út úr sér í samtalinu að hún væri í Fríkirkjunni. Þá segir Sigríður að presturinn hafi sagt að hann gæti ekki fermt hana nema hún gengi úr Fríkirkjunni, þá væri það ekkert mál. Til þess kom þó ekki því dóttir hennar ákvað að fermast heldur í Fríkirkjunni. En Sigríður er ekki sátt. Hún segir þetta engan veginn rétt. Kirkjan eigi að taka á móti öllum sem til hennar leiti. Sigríður fæddist inn í Fríkirkjuna en segist vandræðalaust hafa notið þjónustu Þjóðkirkjunnar hingað til, fermst, gifst og skírt þar öll sín börn enda faðir þeirra í Þjóðkirkjunni. Þess má geta að í siðareglum presta stendur orðrétt:„Prestur fer ekki í manngreinarálit og veitir fólki sálgæslu og aðra kirkjulega þjónustu án tillits til kynferðis, stöðu, skoðana, trúar, þjóðernis, kynþáttar eða vegna annarrar sérstöðu.Fréttastofan hefur undir höndum tölvupóstsamskipti konu sem sendi fyrirspurn til prests í Þjóðkirkjunni þar sem hún spyr hvort börn í Fríkirkjunni geti fermst í Þjóðkirkjunni. Presturinn svarar vafningalaust:„Við höfum ekki tekið að okkur uppfræðslu fyrir önnur trúfélög, þó kristin séu. Hér verða menn að velja hvar þeir standa."Í næsta bréfi frá prestinum stendur:„Fullyrðing þín um að þú getir notað alla þjónustu þjóðkirkjunnar þegar þú gengur úr söfnuðinum er einfaldlega rökleysa. Með úrsögn úr þjóðkirkjunni ert þú að afsala þér þjónustu hennar..."Afstaða Biskupsstofu til þessa fékkst ekki í dag.Séra Magnús Björnsson segir Digraneskirkju taka á móti öllum börnum í fermingarfræðslu - öllum sem eru skráð í Þjóðkirkjuna. Hann segist hafa bent Sigríði á að leita til sóknarprestsins í vesturbæ Kópavogs þar sem fjölskyldan býr, en dóttirin vildi fermast með skólasystkinum sínum í Digraneskirkju.Magnús segir enn fremur að ef Fríkirkjufólk sé óánægt með þá afgreiðslu sem höfð sé sé eðlilegt að séra Hjörtur Magni komi og ræði og ræði við prestana um uppfræðslu sinna safnaðarbarna. Hann sé velkominn í kaffi hvenær sem er.
Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Innlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Fleiri fréttir Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Sjá meira