Einfari sem vinnur neðanjarðar 8. júlí 2007 09:00 Carlos Slim Helu er einfari að eðlisfari sem lifir fyrir börnin sín. Slim þykir hafa hörkutólaútlitið með sér og sést afar sjaldan brosa.
Mexíkóski auðkýfingurinn Carlos Slim Helu, sem nýlega skaust fram úr Bill Gates á lista ríkustu manna veraldar, er um margt sérstakur maður. Hann notar ekki tölvu, starfar að mestu í gluggalausu neðanjarðarbyrgi í heimalandi sínu og þykir afar harður í horn að taka. Slim hefur búið alla sína tíð í Mexíkó en faðir hans var líbanskur innflytjandi sem starfaði sem kaupmaður og hagnaðist vel á fataverslun sem hann rak um árabil. Það varð snemma ljóst að Slim hefði lag á því að græða peninga því 10 ára gamall var hann farinn að selja svaladrykki á götum úti með töluverðum hagnaði. Slim var 13 ára þegar faðir hans lést úr krabbameini og erfði hann þá tugir milljóna sem hann notaði til að fjárfesta í hinum ýmsu fyrirtækjum. Viðskiptaveldi hans í dag nær til margra ólíkra markaða, allt frá tóbaksframleiðslu til lággjaldaflugfélaga. Verðmætasta eign Slim er þó í America Movil, sem er ráðandi á fjarskiptamarkaðnum í Suður-Ameríku. Miklar hækkanir á hlutabréfum í því fyrirtæki á þessu ári valda einmitt því að Slim er nú orðinn ríkasti maður heims. Eignir hans eru metnar á 68 milljarða dollara, eða rúmlega 4.000 milljarða íslenskra króna.Lítið varið í að vera jólasveinnÞrátt fyrir að um 50 milljón manns lifi undir fátæktarmörkum í Mexíkó hyggst Slim ekki deila auðæfum sínum með mexíkósku þjóðinni eftir að hann fellur frá.Ólíkt Gates og Warren Buffet, þriðja ríkasta manni heims, hefur Slim lýst því yfir að hann hyggist ekki gefa nema lítinn hluta auðæfa sinna til góðgerðarmála. Gates ætlar til að mynda að gefa langstærstan hlut auðs síns til góðgerðamála þegar hann fellur frá en synir Slim munu erfa nánast allar hans eignir.„Auður er eins og aldingarður. Það er í lagi að deila ávöxtunum en ekki rótunum," segir Slim og vísar til þess að hann gefur árlega tugi milljarða til ýmissa góðgerðarmála. Það þykir hins vegar alltof lítið miðað við auð Slim, ekki síst í ljósi þess að um 50 milljónir Mexíkóa lifa undir fátæktarmörkum.„Mexíkóska þjóðin skammast sín fyrir Slim. Það er skelfilegt að einn maður skuli vera svona ríkur en svo margir fátækir," segir 26 ára hárgreiðslumaður í Mexíkó-borg. Slim stendur hins vegar fastur á sínu og segist láta gott af sér leiða með því að skapa störf og tækifæri fyrir landa sína. „Það er lítið varið í að vera jólasveinn. Að vera ríkur snýst ekki um að gefa heldur að framkvæma," segir hann.Látlaus pappírsmaðurSlim þykir svo eldklár fjárfestir að hann hefur prýtt forsíðu sérútgáfu af hinu heimskunna borðspili, Monopoly.Slim heldur vel utan um auðævi sín og þykir lítil eyðslukló. Hann lifir tiltölulega látlausu lífi og líkar illa athygli, sem sést best á því að höfuðstöðvar veldis hans eru neðanjarðar. Og þrátt fyrir að eiga fjarskiptafyrirtæki er Slim fjárfestir af eldgamla skólanum því hann kann varla að nota tölvupóst. „Ég á fartölvu en þoli hana ekki. Ég kann betur við pennann og pappírinn."
Mest lesið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Lífið Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Tónlist John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Gagnrýni Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak Menning „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Lífið Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Lífið Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Lífið Fleiri fréttir Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Sjá meira