Leyndardómsfull ferð Leonardo DiCaprio í Jökulsárlón um helgina 10. mars 2007 13:45 Dicaprio. Leikarinn flaug frá New York til Reykjavíkur og dvelst á 101 hótel, einu vinsælasta hóteli borgarinnar. MYND/Getty
Leonardo DiCaprio lenti á Reykjavíkurflugvelli í skjóli nætur aðfaranótt föstudags eftir að hafa hafið sig til flugs frá New York en til stendur að taka af honum forsíðumynd fyrir bandaríska glanstímaritið Vanity Fair hér á landi. DiCaprio dreif sig strax á 101 hótel í miðborg Reykjavíkur þar sem leikarinn svaf úr sér ferðaþreytuna. Hróður hótelsins hefur augljóslega borist víða enda krefjast stórstjörnurnar að hafa þar næturstað og er skemmst að minnast þess að Jude Law tók fjölskyldusvítuna á leigu þegar hann var hér fyrir nokkrum vikum. Heimildir Fréttablaðsins herma að DiCaprio hafi ekki getað verið minni maður en breski sjarmörinn og bókað hina glæsilegu svítu fyrir sig og sína en nóttin kostar litlar 70 þúsund krónur. DiCaprio var þó ekki lengi innan borgarmarkanna. Starfsfólk True North var komið fyrir utan hótelið áður en sól tók að rísa og hélt leikarinn strax austur þar sem ferðinni var heitið í Jökulsárlón. Þar var ekki slegið slöku við. Við tóku stífar tökur hjá ljósmyndaranum Annie Leibovitz og var starfsfólk True North vel tækjum búið, allar skipanir fóru fram í gegnum talstöðvar og bátar ferjuðu leikarann á milli ísjaka á lóninu. Einar Björn Einarsson, staðahaldari í Jökulsárlóni, frábað sér að tjá sig um málið þegar Fréttablaðið hafði samband við hann um morgunin og sagðist ekki geta sagt eitt eða neitt. Heimildir Fréttablaðsins herma að þrjátíu manns hafi komið að myndatökunni með einum eða öðrum hætti og því ljóst að Vanity Fair bindur miklar vonir við hið ósnortna landslag Austurlands. Sem fyrr er starfsfólk True North þögult sem gröfin um komu stórleikarans. „Ég get ekkert sagt og vil ekkert segja. Er ekki bara hægt að leyfa honum að koma í friði?“ voru svörin sem fengust hjá Helgu Margréti Reykdal, framkvæmdarstjóra True North. Komu DiCaprio hefur verið beðið með nokkuri óþreyju. Upphaflega stóð til að leikarinn myndi dveljast hér í nokkra daga og var hann væntanlegur á þriðjudag samkvæmt fyrstu fréttum. Ferðatilhögun leikarans breyttist þó dag frá degi og mikillar spennu tók að gæta meðal aðstandenda True North. Beðið var eftir staðfestingum í vikunni frá fjölmiðlafulltrúa leikarans enda er það regla í þessum bransa að ekkert er öruggt fyrr en fólkið er lent. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins verður leikarinn ekki lengi á landinu heldur verður farinn áður en helgin er á enda.Jökulsárlón skartaði sínu fegursta í gær þegar stórstjarnan Leonardo lét Annie Leibovitz smella af sér nokkrum myndum.Heimildir Fréttablaðsins herma að þrjátíu manns hafi komið að myndatökunni með einum eða öðrum hætti og því ljóst að Vanity Fair bindur miklar vonir við hið ósnortna landslag Austurlands. Sem fyrr er starfsfólk True North þögult sem gröfin um komu stórleikarans. „Ég get ekkert sagt og vil ekkert segja. Er ekki bara hægt að leyfa honum að koma í friði?“ voru svörin sem fengust hjá Helgu Margréti Reykdal, framkvæmdarstjóra True North. Komu DiCaprio hefur verið beðið með nokkuri óþreyju. Upphaflega stóð til að leikarinn myndi dveljast hér í nokkra daga og var hann væntanlegur á þriðjudag samkvæmt fyrstu fréttum. Ferðatilhögun leikarans breyttist þó dag frá degi og mikillar spennu tók að gæta meðal aðstandenda True North. Beðið var eftir staðfestingum í vikunni frá fjölmiðlafulltrúa leikarans enda er það regla í þessum bransa að ekkert er öruggt fyrr en fólkið er lent. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins verður leikarinn ekki lengi á landinu heldur verður farinn áður en helgin er á enda.
Mest lesið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Tónlist „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Lífið Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Sjá meira