Ný ríkisstjórn tekur við á morgun 22. maí 2007 11:56
Samkomulag hefur tekist um myndun ríkisstjórnar milli Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar og er fastlega búist við að ríkisstjórnarskipti verði á Íslandi á morgun. Stjórnarsáttmáli nýrrar ríkisstjórnar liggur fyrir og formennirnir kynna hann nú þingmönnum sínum. Stofnanir flokkanna hafa verið boðaðar til funda í kvöld þar sem bera á upp tillögu um ríkisstjórnarþátttöku og ráðherralista. Kristján Már Unnarsson hefur fylgst með gangi mála í morgun. Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, byrjaði í morgun að kalla þingmenn flokksins á sinn fund hvern og einn til einkasamtals og mættu þeir hver af öðrum í Ráðherrabústaðinn með tuttugu mínútna fresti. Þannig mun hann kalla til sín hina 24 þingmenn flokksins og standa þessi samtöl fram eftir degi. Talið er að á fundunum geri hann þingmönnum grein fyrir stöðu mála og heyri óskir þeirra og viðhorf til ráðherravals. Samskonar atburðarás er einnig hafin hjá formanni Samfylkingarinnar og er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir að kalla þingmenn sína til einkafunda á skrifstofu sinni á Alþingi. Ekki er gert ráð fyrir að formennirnir hittist á frekari formlegum viðræðufundum í dag. Stofnanir flokkanna hafa verið boðaðar til funda í kvöld. Flokksráð Sjálfstæðisflokksins hittist í Valhöll klukkan sjö til að fjalla um ríkisstjórnaraðild og í framhaldi af þeim fundi er búist við að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundi þar sem formaður flokksins kynnir tillögu um ráðherraval. Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur verið kallaður saman til fundar á Hótel Sögu klukkan sjö og flokksstjórn Samfylkingarinnar hittist svo klukkan átta. Geir H. Haarde vildi ekki veita viðtal nú fyrir hádegi en í stuttu spjalli vildi hann ekki staðfesta að samkomulag hefði tekist milli flokkanna. Sagði aðeins að ekkert væri öruggt fyrr en það væri öruggt. Þetta ferli sem nú er hafið er ótvírætt merki þess að samkomulag hafi náðst um stjórnarmyndun. Flokkstofnanir flokkanna munu væntanlega samþykkja ríkisstjórnarþátttöku í kvöld og þá má fastlega búast við að ríkissráðsfundir verði haldnir á morgun og ný ríkisstjórn taki þá við völdum á Íslandi.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Fleiri fréttir Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Sjá meira