Innlent

Tæplega áttræður drukkinn undir stýri

MYND/Stöð 2

Tæplega áttræður ökumaður var tekinn fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í nótt en hann var annar tveggja sem lögreglan stöðvaði vegna ölvunarakstur í nótt. Próflaus ökumaður ók bíl sínum í gegnum grindverk við Hafnafjarðarveg, bíll hans skemmdist nokkuð og er hann óökufær.

Tuttugu og átta umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar í gær og voru flest minniháttar. Flytja þurfti ökumann og farþega á slysadeild eftir tveggja bíla árekstur á Snorrabraut.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×