Guðmundur Bjarnason ennþá landlaus 20. nóvember 2007 11:31 Guðmundur Bjarnason er hér ásamt eiginkonu sinni.
Þjóðskrá hefur enn ekki breytt ákvörðun sinni varðandi Guðmund Bjarnason öryrkja, en hann var sviptur lögheimili hér á landi í febrúar síðastliðnum. Umboðsmaður Alþingis sendi Þjóðskrá bréf og bað um skýringar á því hvers vegna Guðmundi væri ekki svarað. Var Þjóðskrá gefinn svarfrestur til 2. nóvember en ekkert gerist. „Ég stend ráðþrota í þessari stöðu," segir Guðmundur. Þjóðskrá tók ákvörðun um lögheimilisbreytinguna í febrúar á þessu ári og síðan þá hefur hann verið án þeirra réttinda sem öryrkjar hafa hér á landi. Hann fær ekki greiddan sjúkrakostnað og fær ekki niðurgreidd lyf. Hann fær heldur ekki öryrkjabætur. „Dagur B. Eggertsson er búinn að fylgjast með mínu máli frá upphafi. Þegar hann varð borgarstjóri sendi ég honum tölvupóst og benti honum á að nú væri hann í aðstöðu til að greiða úr mínum málum. Hann vísaði mér þá á Björk Vilhelmsdóttur, nýjan formann velferðarráðs," segir Guðmundur og bendir á að þótt mörgu fögru hafi verið lofað, sé enn lítið um efndir. „Ég er að biðja borgina um neyðaraðstoð en samt tekur þetta svona langan tíma," segir Guðmundur og er algerlega í öngum sínum. Þegar Vísir hafði samband við Skúla Guðmundsson, skrifstofustjóra Þjóðskrár, í síðustu viku, sagði hann að Guðmundi yrði svarað fyrir lok dags 16. nóvember. Guðmundur segist enn ekki hafa fengið svar. Hjá Umboðsmanni Alþingis fengust þau svör að embættið myndi ekki tjá sig um málefni einstaklinga. „Þetta snýst um miklu meira en bara það að Þjóðskrá svari einhverju erindi. Þetta snýst um afkomumöguleika Guðmundar. Hann er sviptur öllum möguleikum til að sjá fyrir sér," segir Lára V. Júlíusdóttir, lögmaður hans. Hún segist ekki skilja hvers vegna Þjóðskrá dragi það að svara erindi sínu en fjórir mánuðir er síðan hún fyrst bað Þjóðskrá um að endurskoða ákvörðun sína.
Tengdar fréttir Fær lögheimili ekki flutt aftur til Íslands Úrskurðarnefnd almannatrygginga úrskurðaði í síðustu viku að Guðmundur Bjarnason þyrfti ekki að endurgreiða Tryggingastofnun rúmar þrjár milljónir króna sem hann hafði fengið í bætur. Tryggingastofnun hafði krafist þess að hann endurgreiddi bætur þrjú ár aftur í tímann, eða frá því að Þjóðskrá færði lögheimili hans til Kína. 12. nóvember 2007 06:30 Tryggingastofnun krefur landlausan öryrkja um 3 milljónir króna Guðmundur Bjarnason, sem er öryrki, þarf að endurgreiða Tryggingastofnun 3,3 milljónir króna vegna örorkulífeyris sem sagður er vera ofgreiddur. Krafan frá Tryggingastofnun var lögð fram eftir að Þjóðskrá tók einhliða ákvörðun um að breyta lögheimili Guðmundar Bjarnasonar án nokkurs samráðs við hann. 28. september 2007 15:53 Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira
Fær lögheimili ekki flutt aftur til Íslands Úrskurðarnefnd almannatrygginga úrskurðaði í síðustu viku að Guðmundur Bjarnason þyrfti ekki að endurgreiða Tryggingastofnun rúmar þrjár milljónir króna sem hann hafði fengið í bætur. Tryggingastofnun hafði krafist þess að hann endurgreiddi bætur þrjú ár aftur í tímann, eða frá því að Þjóðskrá færði lögheimili hans til Kína. 12. nóvember 2007 06:30
Tryggingastofnun krefur landlausan öryrkja um 3 milljónir króna Guðmundur Bjarnason, sem er öryrki, þarf að endurgreiða Tryggingastofnun 3,3 milljónir króna vegna örorkulífeyris sem sagður er vera ofgreiddur. Krafan frá Tryggingastofnun var lögð fram eftir að Þjóðskrá tók einhliða ákvörðun um að breyta lögheimili Guðmundar Bjarnasonar án nokkurs samráðs við hann. 28. september 2007 15:53