Sjö Litháar í gæsluvarðhald vegna þjófnaðar 3. október 2007 17:08
Sjö af þeim fjórtán Litháum, sem handteknir hafa verið vegna umfangsmikils þjófnaðar á höfuðborgarsvæðinu, hafa verið úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur. Mennirnir voru gripnir í gærkvöld og hafa verið yfirheyrðir vegna málsins í dag. Hinir sjö, sem handteknir voru í morgun, verða yfirheyrðir í kvöld og þá ræðst það hvort farið verður fram á gæsluvarðhald yfir þeim. Þýfi mannanna fannst á tveimur stöðum í austurbænum, hvort tveggja voru heimili manna sem tengjast málinu. Mun meira magn fannst í fyrri húsleitinni, þar á meðal snyrtivörur, fatnaður, tölvuhlutir og varningur úr stórmörkuðum. Átti einn mannanna pantað far úr landi í dag. Að sögn Ómars Smára Ármannssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni í Reykjavík, var það fyrir árvekni fangavarðar að lögregla komst á snoðir um málið. Ómar segir málið hafa átt nokkurn aðdraganda og að lögregla hafi fylgst með mönnunum. Ómar segir aðspurður að mennirnir sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald séu á aldrinum 22-28 ára gamlir en ekki liggur fyrir hvort þeir höfðu dvalarleyfi hér á landi. Ekki er heldur ljóst hvort þeim hafi tekist að koma einhverju þýfi úr landi en rannsókn lögreglunnar beinist meðal annars að því. Þá segir Ómar aðspurður að ekki liggi fyrir hversu mikils virði þýfið er sem fannst í dag.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira