Friðarsvifflugan enn ógreidd í Nauthólsvík 26. nóvember 2007 04:00 Borgarstjóri afhenti Rudolf Schuster, lengst til vinstri, sviffluguna, að viðstöddum forkólfum Svifflugsfélagsins.
Sviffluga sem Rudolf Schuster, talsmaður Friðarstofnunar Reykjavíkur, fékk að gjöf við komu til landsins í fyrra er enn í geymslu Svifflugsfélagsins ári síðar. Borgarstjóri afhenti sviffluguna en enginn veit hver á að borga fyrir hana. Enginn veit hver á að borga fyrir svifflugu sem fyrrverandi borgarstjóri, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, afhenti Rupert Schuster, nýskipuðum talsmanni Friðarstofnunar Reykjavíkur, í október í fyrra. Svifflugan er í geymslu Svifflugsfélags Íslands í Nauthólsvík, en oft hefur verið brotist þar inn og í eitt skipti borinn eldur að skýlinu. Í október í fyrra kynnti Vilhjálmur hugmyndir um Friðarstofnun Reykjavíkur, í tilefni af tuttugu ára afmæli leiðtogafundar Ronalds Reagan og Mikhails Gorbatsjov í Höfða. Hann bauð Rudolf Schuster, fyrrverandi forseta Slóvakíu, að fara fyrir stofnuninni og vinna að undirbúningi hennar. Í tilefni af komu Schusters til landsins afhenti Vilhjálmur honum gamla svifflugu af gerðinni Ka-8. Schuster er mikill áhugamaður um flug og rekur mikið flugminjasafn í Slóvakíu. Schuster fékk öll skjöl um sviffluguna í hendur og ekki er hægt að fljúga henni án þeirra. Jón Kristinn Snæhólm, aðstoðarmaður Vilhjálms, hafði milligöngu um sviffluguna. Hann segir borgarstjóra ekki hafa gefið sviffluguna heldur eingöngu afhent hana. „Þetta var algjörlega að mínu frumkvæði og ótengt borgarstjóranum,“ segir Jón Kristinn. „Þetta fór aldrei fyrir borgarráð og það stóð aldrei til.“ Jón Kristinn segir sviffluguna vera verðlausa og að aldrei hafi verið rætt um neina borgun. Hann telur hana í mesta lagi kosta hundrað þúsund krónur. Jón Kristinn segist hafa fengið tvö fyrirtæki til að borga flutninginn til Slóvakíu og að ekkert hindri að hún geti farið þangað. Kristján Sveinbjörnsson, formaður Svifflugsfélags Íslands, segir félagið hafa metið sviffluguna á 300 til 400 þúsund krónur. Vélin sé formlega í eigu tveggja félagsmanna. Í ársskýrslu Svifflugsfélagsins stendur að svifflugan sé „gefin af borginni“ og að uppgjör vegna hennar muni fara fram í tengslum við samning um nýtt húsnæði Svifflugsfélagsins, sem borgin hafi lofað að útvega því. steindor@frettabladid.is
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Árni Tómas Ragnarsson er látinn Innlent „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Innlent „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Innlent „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Innlent Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík Innlent Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu Innlent Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Innlent Fleiri fréttir Samfylkingin í Reykjavík þurfi að byggja aftur upp traust Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Rýnt í mögulega meirihluta í Reykjavík Malbika seinni akreinina að nóttu til á Suðurlandsvegi Kveikti í sér eftir að hafa verið beittur rafvarnarvopni Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Breytingar á meirihluta í Skagafirði í fyrsta sinn í tuttugu ár Nóg að gera hjá áhöfnum björgunarskipa Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Sjá meira