Árni fjármálaráðherra varð af 150 milljónum 28. mars 2007 10:15 Helgi Vilhjálmsson. Ætlar að bjóða þeim sem lá svo á að selja og urðu af 150 milljónum upp á kók og hraun í sárabætur.
Við sameiningu SPH og SPV hefur stofnfjárhlutur SPH nú fjórfaldast. Hlutur sem seldur var á 50 milljónir fyrir ári er nú metinn á 200 milljónir. "Ég sagði við sjálfan mig og aðra: Fyrst allir snillingar landsins þyrpast til Hafnarfjarðar og vilja kaupa þá er best að bíða og sjá. Ég fékk þetta á silfurfati eins og aðrir og mér lá ekkert á," segir Helgi Vilhjálmsson athafnamaður í Hafnarfirði kenndur í Góu. Og hrósar nú happi. Við sameiningu Sparisjóðs Hafnarfjarðar (SPH) og Sparisjóðs vélstjóra nýverið fjórfaldaðist stofnfjárhlutur hvers um sig. Mikið var um það fjallað í fréttum fyrir ári að kaupsýslumenn ýmsir, undir forystu lögmannsins Sigurðar G. Guðjónssonar, ásældust stofnfjárhlut sem þröngur hópur ábyrgðarmanna SPH eða tæplega fimmtíu, sem breyttist óvænt í stofnfjáreigendur með lagabreytingum um fjármálastofnanir, átti. Stofnfjáreigendurnir, sem flestir höfðu verið handvaldir í hópinn af Matthíasi Á. Mathiesen eða komið inn í tengslum við bæjarstjórnarsetu sína, áttu skyndilega hlut sem metinn var á 50 milljónir. Og gátu margir ekki beðið þess að selja og stinga peningunum í eigin vasa. Sparistjóður Hafnarfjarðar. Flestum sem fengu stofnfé á silfurfati bráðlá á að selja og veltu ekki fyrir sér því af hverju menn ásældust bréfin. Reyndar hefur Fréttablaðið heimildir fyrir því að hluturinn hafi eitthvað hækkað frá fimmtíu milljónum enda ásælnin mikil " þeir sem vildu kaupa sáu þarna fram á skjótfenginn og auðveldan gróða. Einn hlutur hvers um sig samanstóð af tveimur bréfum er nú, ári síðar, metinn á tvöhundruð milljónir. Munar um minna. Þeim sem lá svo á að selja urðu þannig af 150 milljónum á einu ári. "Þeir hljóta að fara að gráta. Greinilega ekki eins miklir fjármálamenn og ég sem ætla að bjóða þeim upp á kók og hraun. Ég er búinn að ávaxta vel mitt pund. En þeir verða að bíta í þetta súra epli. Þeir héldu ekki vatni. Þeim lá svo á sumum," segir Helgi. Ljóst er að kaupsýslumenn á borð við Magnús Ármann, Sigurð Bollason, Björn Þorra Viktorsson, Jón Pálmason, Pálmi Haraldsson og margir fleiri hafa þarna hagnast verulega með lítilli fyrirhöfn. Fáeinir stofnfjáreigendur SPH hafa reyndar ekki selt sem eftir sitja líkt og Helgi: Matthías Á. Matthiesen, Trausti O. Lárusson, Ingólfur Flygenring, Þórður Magnússon og Páll Pálsson eru meðal þeirra sem ekki seldu og prísa sig nú líklega sæla. Árni Mathiesen. Það passaði mér ekki að vera þarna inni. Hins vegar eru margir þekktir Hafnfirðingar sem seldu og eiga nú von á kóki og hraun frá Helga í sárabætur: Þór Gunnarsson, Ingimar Haraldsson, Sigurbergur Sveinsson, Sigurður Þórðarson, Gissur Guðmundsson, Ingvar Viktorsson, Finnur Árnason og Árni Grétar Finnsson eru þeirra á meðal sem og fjármálaráðherra sjálfur Árni Mathiesen. "Ég var búinn að lofa því að nota þessar 50 milljónir í eitthvað gott. Nú er ég búinn að fá góða vexti og get kannski tekið eitthvað fyrir sjálfan mig. Mér fannst illa farið með Matta [Matthías. Á.] og er ánægður með að hann fái eitthvað. Menn sviku hann. Því þetta var eftirsótt fyrirtæki. Og þá hafa menn verið að gera eitthvað rétt. Hvað segir Árni Matt?" spyr Helgi. Fjármálaráðherra segist ekki aðili málsins og sé ekki til umræðu um það. "Ég fór þarna út vegna þess að ég taldi að það gengi ekki stöðu minnar vegna að vera þarna inni. Passaði mér ekki. Breytir engu þó ég hafi orðið af peningum vegna þess. Þetta snérist aldrei um peninga," segir Árni Mathiesen.
Mest lesið Hvar er Mollý Tik Tok skinka í dag? Lífið Sigraðist á krabba og komst að óléttu samdægurs Lífið Björt og Fannar selja einbýlishús fyrir 90 milljónir Lífið Michael Madsen er látinn Lífið Anna Guðný fann ástina í faðmi kraflyftingamanns Lífið Kvenorkan tók yfir á Garðatorgi Lífið Lykla-Pétur fauk á haf út Lífið Miðar á Kaleo endurseldir á margföldu verði Lífið Eitt glæsilegasta hrossabú landsins falt fyrir tæpan einn og hálfan milljarð Lífið Vann glæsilegan vinning í sumarbókaleik Bylgjunnar og Vísis Lífið samstarf Fleiri fréttir Michael Madsen er látinn Kvenorkan tók yfir á Garðatorgi Björt og Fannar selja einbýlishús fyrir 90 milljónir Anna Guðný fann ástina í faðmi kraflyftingamanns Lykla-Pétur fauk á haf út Sigraðist á krabba og komst að óléttu samdægurs Miðar á Kaleo endurseldir á margföldu verði Hvar er Mollý Tik Tok skinka í dag? Landsliðsmaður gifti sig í Vík í Mýrdal Eitt glæsilegasta hrossabú landsins falt fyrir tæpan einn og hálfan milljarð Elta drauminn um hægara líf eftir fjögur ár á Íslandi Sólveig og Halldór gáfu dótturinni nafn Slær á létta strengi í þinginu og afhenti ráðherra „Gyllta tappann“ Of Monsters and Men gefa út nýtt lag Brady og Bloom sagðir sólgnir í Sweeney Fyrst skíði og nú golf Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén „Takk Hreyfill frá Vorsabæ“ Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Árin hjá Spotify ævintýri líkust Einar fékk meira hár en Baldur „Öruggt athvarf fyrir hinsegin samfélagið“ Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Skordýrabrúðkaup í Laugardalslaug Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Sjá meira