Sérfræðingar verða að hlusta á sjómenn 20. október 2007 05:30 Smábátasjómenn gagnrýndu stjórnvöld og vinnubrögð sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar harðlega á aðalfundi LS í gær.
Afar hörð gagnrýni á niðurskurð þorskafla og aðferðafræði Hafrannsóknastofnunar við stofnstærðarmælingar kom fram við upphaf 23. aðalfundar Landssambands smábátaeigenda (LS) í gær. Arthur Bogason, formaður LS, sagði í setningarræðu að stórkostleg brotalöm væri á niðurstöðum Hafrannsóknastofnunar og fordæmdi hversu lítið samráð væri við sjómenn. Hann ítrekaði kröfu LS um þorskkvóta. Einar K. Guðfinnsson sagði hugmyndir LS ótrúverðugar. Arthur gerði að umtalsefni það sem hann kallaði sérfræðingaþjóðfélag og að ekki skuli vera meira tillit tekið til þeirra gagna sem sjómenn afla með nýjustu tækni. Hann sagði að á fundi LS með Hafrannsóknastofnun hafi komið fram „sú hrikalega gjá sem hefur myndast á milli sérfræðinganna og þeirra sem starfa á vettvangi." Arthur segir fundinn hafa engu skilað enda hafi vísindamenn hundsað með öllu hugmyndir og rök LS á fundinum. Hann varpaði fram spurningu um hvort smábátaeigendur viti virkilega minna um ástandið á Íslandsmiðum en sérfræðingar, hvaða nafni sem þeir kunna að nefnast. „Auðvitað ekki. Skýringin er sú að sérfræðingar hafa fyrsta og síðasta orðið og gagnrýninni hugsun er vikið til hliðar. Út úr þessum vítahring verðum við að brjótast." LS lagði í sumar fram hugmyndir um 220 þúsund tonna jafnstöðuafla til þriggja ára. Arthur gerði þessa tillögu LS að umtalsefni sínu og gagnrýndi það fálæti sem þær fengu víðast hvar í samfélaginu. Einar K. Guðfinnsson, sem var gestur fundarins, sagði í ræðu sinni að fara nær 100 þúsund tonnum fram úr veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar þætti honum „afskaplega ótrúverðugt". Hann minnti á að allir aðrir hagsmunaaðilar í sjávarútvegi hefðu kynnt hugmyndir um heildaraflamark í þorski sem fól í sér niðurskurð frá þeim 193 þúsund tonnum sem aflamarkið var fyrir. Arthur og Örn Pálsson, framkvæmdastjóri LS, tæptu á fjölmörgum baráttumálum smábátasjómanna í ræðum sínum í gær. Ein þeirra var áskorun til sjávarútvegsráðherra að breyta regluverki línuívilnunar. Hefur þessi regla verið til umfjöllunar í samhengi við sjóslys í mynni Ísafjarðardjúps í mars þar sem tveir sjómenn létu lífið. Einar sagði að ef það sannaðist að reglan valdi óöryggi sjómanna þá verði henni breytt. „Við teljum jafnvel forsendu til að gera það á grundvelli reglugerðar." svavar@frettabladid.is
Mest lesið Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Innlent Guðmundi Inga hafnað Innlent Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Innlent „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Erlent Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Erlent „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Innlent Fleiri fréttir „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Lögregla fylgdist með netsvikum í rauntíma Sérsveitin kölluð út en engum skotum reyndist hleypt af Söguleg handtaka og umdeildir skannar Brotist inn í leikskóla í Reykjavík Allt tiltækt slökkvilið slökkti sinueld Bráðabirgðaákvæði um kosningar í Grindavík samþykkt á þingi Hollenski skákmeistarinn og Íslandsvinurinn Jan Timman er látinn Braut ítrekað á stjúpdóttur og bar fyrir sig kynferðislega svefnröskun Rannsóknarprófessor og stofnandi Bláa lónsins hlutu Ásuverðlaunin Níu ára fangelsi fyrir að nauðga fatlaðri konu ítrekað Skipulagsstofnun lögð niður Finnst Samfylkingin hafa komið ómaklega fram við sig Tíu ára fangelsi fyrir að verða manni að bana í Kiðjabergi Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Rósa Björk býður sig fram í formann VG Framkvæmdir við Fontana trufluðu hitaveitu á Laugarvatni Hætta að rukka foreldra fyrir leikskólapláss í Ölfusi Árekstur á Sprengisandi Vistmenn á Hjalteyri krefjast bóta sem þeim var lofað Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Guðmundi Inga hafnað „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Ánægjulegt að þriðji hagfræðingurinn sé fundinn „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Fallni prinsinn handtekinn og undirboð á fasteignamarkaði aukast Heitavatnslög gaf sig í Varmahlíðarskóla Miðflokkurinn skarar fram úr í kjördæmi formannsins „Fjölskyldur eru margar í algjörri spennitreyju“ Sjá meira