Lettarnir hjá GT flestir farnir úr landi 20. október 2007 06:30 Lettarnir þrettán, sem leituðu til Afls starfsgreinafélags, eru komnir heim, að sögn Sverris Albertssonar framkvæmdastjóra.
Vinnumarkaður Lettarnir þrettán hjá starfsmannaleigunni Nordic Construction Line, NCL, sem unnu fyrir GT verktaka og Arnarfell við Hraunaveitu, eru farnir úr landi allir nema einn. Þessi eini er kominn til Reykjavíkur og búinn að finna sér vinnu þar. Sverrir Mar Albertsson, framkvæmdastjóri Afls starfsgreinafélags, segir að NCL hafi keypt flugfar fyrir mennina úr landi og gistingu fyrir þá í Keflavík en þeir fóru úr landi strax eftir að yfirheyrslum lauk fyrir Héraðsdómi Austurlands í vikunni. Afl hafi sent með þeim litháískan túlk til Keflavíkur til að koma í veg fyrir hættu á því að mennirnir drægju framburð sinn til baka en þeir hafi verið blankir og óþreyjufullir að komast heim til sín. Litháinn sé fyrrverandi lögreglumaður sem hafi jafnframt túlkað fyrir þá. Nokkuð bar á ólgu á Austurlandi þegar mál Lettanna var sem mest í umræðunni. Sverrir segist hafa fengið talsvert af símtölum frá erlendu launafólki og íslenskum samstarfsmönnum og tvö til þrjú mál séu til skoðunar. Kæra Afls á hendur NCL og GT verktökum er nú til umfjöllunar hjá efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra. Auður Ýr Steinarsdóttir fulltrúi segir að málið sé þar á frumstigi. Rannsóknin gangi út á það hvort peninga hafi vantað í launaumslög mannanna og hvort þeir hafi hugsanlega verið þvingaðir til að skrifa undir pappíra. Starfsmenn og starfsmannafélag GT verktaka ehf., hafa lýst yfir stuðningi við fyrirtækið og stjórnendur þess og segja ólíðandi að sitja undir ósanngjarnri og hatrammri aðför að eigendum fyrirtækisins. Almennir starfmenn og fjölskyldur þeirra hafi þurft að þola dylgjur, hrakyrði og jafnvel hótanir frá ókunnugu fólki og því áskilji þeir sér allan rétt til skaðabóta vegna aðfarar að starfsöryggi þeirra og heiðri. Í vitnaleiðslum yfir mönnunum fyrir Héraðsdómi Austurlands bar mönnunum saman um að það hefði vantað í launaumslögin miðað við þær kvittanir sem þeir hefðu skrifað undir. Einhverjir þeirra hefðu staðfest móttöku með fyrirvara um að þetta væri ekki sama upphæð og þeir hefðu móttekið. Tveir túlkar höfðu milligöngu um samskipti GT verktaka við Lettana. Annar túlkanna er farinn úr landi en hinn hefur verið úrskurðaður í farbann. ghs@frettabladid.is
Mest lesið Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Innlent Guðmundi Inga hafnað Innlent Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Innlent „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Erlent Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Erlent „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Innlent Fleiri fréttir „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Lögregla fylgdist með netsvikum í rauntíma Sérsveitin kölluð út en engum skotum reyndist hleypt af Söguleg handtaka og umdeildir skannar Brotist inn í leikskóla í Reykjavík Allt tiltækt slökkvilið slökkti sinueld Bráðabirgðaákvæði um kosningar í Grindavík samþykkt á þingi Hollenski skákmeistarinn og Íslandsvinurinn Jan Timman er látinn Braut ítrekað á stjúpdóttur og bar fyrir sig kynferðislega svefnröskun Rannsóknarprófessor og stofnandi Bláa lónsins hlutu Ásuverðlaunin Níu ára fangelsi fyrir að nauðga fatlaðri konu ítrekað Skipulagsstofnun lögð niður Finnst Samfylkingin hafa komið ómaklega fram við sig Tíu ára fangelsi fyrir að verða manni að bana í Kiðjabergi Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Rósa Björk býður sig fram í formann VG Framkvæmdir við Fontana trufluðu hitaveitu á Laugarvatni Hætta að rukka foreldra fyrir leikskólapláss í Ölfusi Árekstur á Sprengisandi Vistmenn á Hjalteyri krefjast bóta sem þeim var lofað Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Guðmundi Inga hafnað „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Ánægjulegt að þriðji hagfræðingurinn sé fundinn „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Fallni prinsinn handtekinn og undirboð á fasteignamarkaði aukast Heitavatnslög gaf sig í Varmahlíðarskóla Miðflokkurinn skarar fram úr í kjördæmi formannsins „Fjölskyldur eru margar í algjörri spennitreyju“ Sjá meira