Innlent

Ætlar að bjarga Kolaportinu

Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Eggertsson
„Það gengur ekki að skilja Kolaportið eftir á köldum klaka," segir nýr borgarstjóri Dagur B. Eggertsson. Hann vill taka upp viðræður við tollstjóra um að embætti hans fái bílastæði í grenndinni.

Dagur kveður jafnframt tímabært að taka af skarið um Sundabraut á næstu mánuðum og þar treystir hann á góða samvinnu við samgönguráðherra.

Þá segir Dagur að til greina komi að kaupa brunarústirnar í Lækjargötu. „Við getum auðvitað ekki haft hjarta Reykjavíkur eins og opið sár. Það finnst mér algjörlega útilokað," segir hann.

Borgarstjóri telur að við stækkun Hringbrautar hafi yfirvöld ekki náð að hugsa hönnunina í takt við kröfur nútímans. Stórar umferðaræðar í íbúðahverfum skerði lífsgæði almennings.

Ný hugsun ríki nú í borgarmálum og tími sé kominn til að endurhugsa samgöngur og skipulag.

- kóþ /



Fleiri fréttir

Sjá meira


×