Eyþór tekur glæsieign í Þingholtsstræti í gegn 28. september 2007 00:01 Eyþór og Dagmar eiga bóndabæinn Hreiðuborg og nýverið bættist við stór eign í Þingholtsstræti. MYND/Hörður „
Við sáum þarna einfaldlega kærkomið tækifæri og vildum taka þátt í því endurreisnarstarfi sem hefur verið í gangi í Þingholtunum," segir bæjarfulltrúinn Eyþór Arnalds en hann og eiginkonan Dagmar Una Ólafsdóttir keyptu í sumar hundrað ára gamalt timburhús við Þingholtsstræti 21. Hjónin hafa sótt um leyfi hjá skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar fyrir því sem Eyþór segir vera „gagngerar endurbætur á húsinu í anda upphaflegrar hönnunar þess" en eignin mun stækka töluvert og verður 420 fermetrar þegar þeim framkvæmdum er lokið. „Sumir kaupa sér sumarbústað í sveitinni en við snúum dæminu við því þetta verður eiginlega okkar „bústaður" í borginni," bætir Eyþór við sem alla jafnan býr í sveitasælunni í Árborg. Að sögn Eyþórs var eignin í hálfgerðri niðurníslu þegar þau keyptu það en hjónin ætla að bretta upp ermarnar við að koma því aftur í sitt upprunalega horf. „Við ætlum ekki að ráðast í einhverja nútímavæðingu og niðurrifsstarfsemi," segir Eyþór. Hjónin hafa fengið arkitektinn Pál Bjarnason til liðs við sig en hann á meðal annars heiðurinn af endurreisn Iðnó. „Að rífa ný hús virðist vera í tísku og kemur sennilega betur út á Excel-skjali," segir Eyþór.Þingholtsstræti 21 er tæplega hundrað ára gamalt hús og hyggjast hjónakornin gera á því þónokkrar endurbætur.MYND/RósaBæjarfulltrúinn í Árborg vildi ekki gefa upp hversu mikið hann hefði borgað fyrir eignina en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er fermetraverðið í Þingholtunum með því hæsta í höfuðborginni og getur farið uppí allt að þrjú hundruð þúsund. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst er venjan að óskað sé eftir tilboðum í eignir á þessu svæði en fastlega má gera ráð fyrir því að verðið hafi ekki verið undir 100 milljónum. Með fyrirhugaðri stækkun verður það hins vegar ríflega 120 milljóna króna virði. Eyþór segist vera lítið smeykur við meintan miðbæjarskríl í 101 enda séu engir veitingastaðir eða ölstofur í næsta nágrenni. „Og svo er fólk náttúrlega svo misjafnt. Við erum til að mynda ekki mikið á ferli eftir kvöldmat," segir Eyþór.
Mest lesið „Hæ ástin mín, Nýtt í hverjum mánuði á fimmtudaginn, ertu laus?“ Áskorun Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Lífið Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Lífið Brigitte Bardot er látin Lífið Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2025 Lífið Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Lífið Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Lífið Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Lífið „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Fleiri fréttir Náði ekki milljónamarkmiðinu en heldur ótrauð áfram Brigitte Bardot er látin Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Frægir fjölguðu sér árið 2025 Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Sjá meira
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein