Frumburðurinn fæddist á sömu mínútu og myndin hófst 24. ágúst 2007 10:00 Við kvennadeildina Gunnar Björn Guðmundsson brunaði frá fæðingardeildinni á Landspítalanum til Bíóhallarinnar í Álfabakka á miðvikudagskvöldið og náði að sjá síðustu 10 mínúturnar af frumsýningu sinnar fyrstu kvikmyndar í fullri lengd. MYND/Anton „
Hún kom í heiminn 21 mínútu yfir átta, nánast á sömu mínútu og myndin byrjaði. Þetta var lygasögu líkast," segir leikstjórinn og nýbakaði faðirinn, Gunnar Björn Guðmundsson. Hans fyrsta kvikmynd í fullri lengd, Astrópía, var frumsýnd fyrir troðfullum sal Bíóhallarinnar í Álfabakka í fyrrakvöld en á sama tíma var leikstjórinn sjálfur staddur á fæðingardeildinni að taka á móti frumburði sínum. Gunnar missti því af stærstum hluta frumsýningarinnar en kom í salinn þegar um 10 mínútur voru eftir. „Þá hélt ég ræðuna sem átti að vera fyrir myndina og náði að heilsa upp á fólkið. Síðan lá leiðin aftur upp á fæðingardeild," segir leikstjórinn. Honum og eiginkonu hans fæddist dóttir og segir leikstjórinn að öllum fjölskyldumeðlimum heilsist vel. „Hún átti að koma í september en vildi greinilega ekki að Astrópía tæki alla athygli pabba síns og var því ekkert að láta bíða eftir sér," segir Gunnar og hlær. Nokkrir hafa skotið því að Gunnari að það eina rétta í stöðunni sé að nefna dótturina Astrópíu. „Án þess að ég viti hvort það megi þá held ég að ég geti útilokað það hér og nú. Dóttir mín mun ekki heita Astrópía," sagði Gunnar og hló. Astrópía hlaut glimrandi viðtökur á frumsýningunni og hefur verið fullt út úr dyrum í alla sali Sambíóanna frá því á miðvikudagskvöld. Þá hefur kvikmyndin fengið fína dóma hjá gagnrýnendum. „Ég geng um á bleiku skýi og held að ég ljúgi engu þegar ég segi að þetta hafi verið eftirminnilegasti dagur lífs míns. Ég er hamingjusamasti maður í heimi."
Mest lesið Brynjar skiptir Aroni út Lífið Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Lífið Harry Potter leikari tekur aftur við hlutverki sínu Lífið Hraustustu hjón Garðabæjar selja glæsihýsi Lífið „Okkur var ekkert cancelað, nema hann bara gerði það sjálfur“ Tónlist Endanlega búið spil hjá Johnson og Martin Lífið Vanvirkar fjölskyldur og hlutverkin sem skilja eftir sár Lífið Unga fólkið sækir í svissnesk TAG Heuer Lífið samstarf Svona hljómar Himinn og jörð í flutningi Svölu Lífið Romeo Beckham og Kim Turnbull sögð hætt saman Lífið Fleiri fréttir Harry Potter leikari tekur aftur við hlutverki sínu Brynjar skiptir Aroni út Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Svona hljómar Himinn og jörð í flutningi Svölu Romeo Beckham og Kim Turnbull sögð hætt saman Endanlega búið spil hjá Johnson og Martin Hraustustu hjón Garðabæjar selja glæsihýsi Kveða orðróminn í kútinn: „Það eru engar deilur“ Endurfrumsýning Brúðubílsins: „Lilli er eiginlega bróðir minn“ Opinberar nákvæmar upplýsingar um brjóstaaðgerðina Geðbrigði ríður á vaðið í tónleikaröð á Dillon Í sjokki að sonurinn hafi verið á typpinu Vanvirkar fjölskyldur og hlutverkin sem skilja eftir sár Morten Harket greinist með Parkinson Heillandi heimili Sigríðar hjá Birtingi í hjarta Hafnarfjarðar Ekki bara tónleikar heldur alhliða þungarokkshátíð Fjórum íslenskum útgáfum fagnað í tónlistarveislu í Iðnó Aron segist hættur í ClubDub Ragga nagli í hlutverk fjallkonu í Danmörku Dregur til baka hluta ásakana á hendur Baldoni Aron Kristinn og Lára keyptu nýstárlega miðbæjarperlu Módernískur retró-stíll í hjarta miðborgarinnar Tíu af fyndnustu dýralífsmyndunum Er með gervigreindarþjálfara Væbaramanía og múgæsingur er nýtt átak var kynnt Bergþór Másson selur slotið á ný Kaffibarinn til sölu í smækkaðri mynd Troðfylltu Laugardalshöll á umtöluðum tónleikum FM95Blö Söknuðurinn bar Skoppu og Skrítlu ofurliði Stjörnulífið: Sumarlegar skvísur og stórtónleikar Sjá meira