Níu ára breikari með mikinn metnað 18. ágúst 2007 03:15 Örlygur Steinar Arnalds á sér ekkert uppáhalds spor í breiki, og segir allt vera jafn skemmtilegt. Hann er níu ára gamall og hefur æft breik í eitt ár. MYND/valli
Örlygur Steinar Arnalds, níu ára, er fantagóður breikari. Í vikunni vakti hann athygli fyrir frammistöðu sína á breiksýningu í Kringlunni, enda yngsti breikarinn í hópnum sem þar kom fram. „Hann byrjaði mánuði fyrir átta ára afmælið sitt,“ útskýrði móðir hans, Anna Sigríður Örlygsdóttir, sem segir áhugann hafa verið til staðar frá þriggja, fjögurra ára aldri. „Aldurstakmarkið í Kramhúsinu var hins vegar átta ár,“ sagði hún. Örlygur segir breik hafa orðið ofan á, þar sem að aðrar íþróttir höfði ekki til hans. „Mér finnst fótbolti og þannig ekkert skemmtilegt,“ sagði hann. Hann kveðst ekki eiga neitt uppáhaldsspor í breikinu, sem samanstendur af hreyfingum og sporum sem flesta óar við að reyna að framkvæma. „Mér finnst bara allt gaman. Sum sporin eru erfið, en ég æfi mig líka heima,“ sagði hann. Metnaðurinn er á sínum stað. „Ég byrjaði líka í fimleikum til að styrkja mig í breikinu,“ sagði Örlygur. Breikið sótti Örlygur fyrst hjá Natöshu Monay Royal í Árbæjarþreki, en síðar í Kramhúsinu. Natasha hefur staðið fyrir keppnum í breiki, og Örlygur hreppti annað sætið í fyrra. Hann hefur þó breikað víðar en í Kringlunni. „Örlygur breikaði á Spáni í sumar. Á einum veitingastaðnum var reglulega danssýning með breikatriðum, og hann var tekinn upp í þau. Hann var bara í sjálfboðavinnu,“ bætti hún við. Örlygur, ætlar að halda áfram í breikinu, mun breika fyrir framan Háskóla Íslands í dag, þar sem Latabæjarhlaupið fer fram.
Mest lesið Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Lífið Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ Lífið Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Lífið Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Bíó og sjónvarp Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Lífið Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið Fleiri fréttir Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Hvað er í gangi á Svalbarða? Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Sonur Mari og Njarðar fæddur Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Sjá meira