Umdeild mynd af Harry prins 9. ágúst 2007 05:30 Vafasamt líferni Harrys hefur lengi verið í umræðunni ytra. Blaðið Radar þykir hins vegar fara yfir strikið í umfjöllun sinni.
Forsíða septemberútgáfu bandaríska tímaritsins Radar hefur valdið mikilli reiði á meðal almennings í Bretlandi en hún sýnir fáklæddan Harry prins sitjandi í hásæti með bjór í hendi. Myndin af Harry er að sjálfsögðu unnin í tölvu og gerð á þann hátt að höfuð Harrys er komið fyrir á uppstilltum líkama. Myndin á að endurspegla þá ímynd sem Harry hefur skapað sér með líferni sínu undanfarin ár, en þar sést hann klæddur í nærbuxur og náttslopp með glennta fætur. Harry prins sonur Díönu og Charles Bretaprins Umfjöllun tímaritsins fjallar um villt líferni Harrys og er því haldið fram að prinsinn sé fyllibytta af verstu gerð og eiturlyfjaneytandi þegar svo ber til. Rætt er við ýmsa heimildarmenn innan bresku konungsfjölskyldunnar sem segja sögur af partístandi Harrys fram eftir nóttu og er meðal annars sagt frá því að Harry hafi misst af endurfundum menntaskóla síns fyrir skemmstu þar sem hann var enn að sofa úr sér ölvun frá kvöldinu áður. Þá er sagt frá því að Harry hafi fyrr á árinu verið skipað af Karli föður sínum að taka sér tak og fara að haga sér betur. right Þetta er langt frá því að vera í fyrsta sinn sem orðspor hins 22 ára gamla Harrys bíður hnekki og hefur hann lengi haft orð á sér fyrir að vera vandræðagripur fyrir konungsfjölskylduna. Neyðarlegar myndir af honum hafa birst reglulega í fjölmiðlum en svo virðist sem flestum sérfræðingum bresku götublaðanna um málefni konungsfjölskyldunnar þyki myndbirting Radar vera fyrir neðan beltisstað og hreinlega dónaleg. Myndin lýsi andúð Bandaríkjamanna á bresku konungsfjölskyldunni og myndbirtingin jaðri við að flokkast undir sama eineltið og Díana prinsessa varð fyrir hjá fjölmiðlum vestra á sínum tíma. Fólk í Bretlandi er almennt talið reitt vegna málsins og telur að illa sé vegið að prinsinum. Talsmaður konungsfjölskyldunnar vildi ekki tjá sig um málið í gær.
Mest lesið Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Lífið „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Lífið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið Tuttugu gellur á einu kvöldi Lífið Bonnie Tyler vöknuð úr dái Tónlist Heitustu tískutrendin í sumar Tíska og hönnun Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Lífið Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Lífið Fleiri fréttir Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Sjá meira