Lífið

Sigmundur Ernir milli steins og sleggju

Egill Helgason kannast ekki við neitt tiltal.
Egill Helgason kannast ekki við neitt tiltal.

„Ég kannast ekki við að hafa fengið neitt tiltal. Mér dettur ekki í hug að biðjast afsökunar á að segja sannleikann um þessa byggingu sem er táknmynd pólitískrar spillingar,“ segir Egill Helgason.

Í gær greindi Fréttablaðið frá því að Sigmundur Ernir Rúnarsson, fréttastjóri Stöðvar 2, hefði veitt Agli tiltal vegna ummæla hans sem féllu í kosningasjónvarpi Íslands í dag hvað varðar Orkuveituhúsið. Blaðið hefur undir höndum bréf sem Sigmundur Ernir reit til Orkuveitunnar þar sem þetta kemur fram auk afsökunarbeiðni á „ósanngjörnum“ ummælum Egils.

 

sigmundur ernir Baðst afsökunar fyrir hönd fréttastofunnar.

Í samtali við Fréttablaðið segist Sigmundur Ernir ekki tjá sig um mál einstakra starfsmanna. „Það er bara regla.“

Egill hefur ekki í hyggju að draga í land hvað varðar afgerandi skoðanir sínar á Orkuveituhúsinu en tekur þó fram að allt sé í góðu milli sín og Sigmundar Ernis. „Ég hygg að mörgum sé farið líkt og mér að þeir verði hreinlega reiðir þegar þeir koma inn í þetta hús en þar æpir bruðlið framan í mann. Ég hitti mikið af fólki í gær sem nefndi þetta við mig. Þar á meðal háttsettan embættismann sem sagði að hann fengi einnig ofnæmisviðbrögð þegar hann kæmi þarna inn.“

 

guðmundur þóroddsson Ósmekklegt af Agli.

Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitunnar, segist ekki kippa sér upp við orð Egils. „Mér finnst þetta fyrst og fremst mjög ósmekklegt af honum. Að koma og fá lánaða aðstöðu hjá okkur og nota hana til að vega að okkur í einhverjum þætti þar sem við erum hvorki viðstaddir né aðilar að á nokkurn hátt. Þetta er fyrst og fremst leiðinlegt fyrir okkar starfsfólk.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.