Tískugúrúinn Ási í útrás 3. júlí 2007 06:45 Fatahönnuðurinn og stílistinn Ási er sáttur við danska tískuheiminn og hefur í nógu að snúast á nýjum stað.
Fatahönnuðurinn og stílistinn Ásgrímur Már Friðriksson, sem hefur meðal annars getið sér góðs orðs hér á landi fyrir sköpunarverk sín fyrir Silvíu Nótt, er lagstur í útrás og fluttur til Danmerkur. Þar starfar Ásgrímur, sem iðulega er kallaður Ási, á tímaritinu Cover, sem nýtur töluverðrar hylli í tískuheiminum. „Ég er aðstoðar-„fashion director", eða tískustjórnandi," útskýrði Ási, sem flutti af landi brott í mars og hefur starfað á Cover síðastliðna tvo mánuði. Ási segir danska tísku vera í uppsveiflu og hefur í nógu að snúast. „Ég er bara mjög sáttur, þótt það sé brjálað að gera," sagði hann og hló við. „Þetta er rosa flott tímarit, það flottasta hér. Það er meira „avant garde" en hin blöðin. Það er um allt sem tengist sköpun; tónlist, myndlist, lífsstíl, fatahönnun og tísku," sagði Ási, en í verkahring hans felst stílistavinna, greinaskrif, viðtöl og skrif í vefrit blaðsins. Aðspurður hvort dönskukunnátta hans sé svona góð skellir hann upp úr. „Ég skrifa á ensku, og svo er það þýtt. Það er svo langt síðan að maður lærði dönsku," sagði hann sposkur. Að sögn Ása er Cover flottasta tímarit Dana, en það nýtur mikillar hylli í Danaveldi og þótt víðar væri leitað. Danmörk er þó ekki endanlegur áfangastaður hjá Ása. „Þetta er svona fyrsta stoppið. Ég ætla að hoppa á milli landa í einhvern tíma. Ég var ekkert bundinn heima og langaði að komast út og upplifa eitthvað nýtt," útskýrði hann. „Næst verður það London, París eða Berlín. Framtíðin leiðir það bara í ljós," sagði hann.
Mest lesið Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Tónlist Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Lífið Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Lífið Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Lífið Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Lífið Girnileg pizzaloka sem þú verður að prófa! Lífið samstarf „Töluvert álag á líkama sem nálgast sextugt“ Lífið samstarf Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Lífið Fleiri fréttir Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Sjá meira