Vilhjálmur aftur í fang Kate 2. júlí 2007 02:00 Vilhjálmur Bretaprins er ástfanginn upp fyrir haus af Kate Middleton. Þau hafa leynt sambandi sínu síðustu þrjá mánuði. NordicPhotos/GettyImages
Vilhjálmur Bretaprins var kominn aftur í fang kærustu sinnar, Kate Middleton, aðeins fjórum dögum eftir að þau tilkynntu að þau væru hætt saman. Þau hafa haldið sambandi sínu leyndu síðan í apríl. Breska þjóðin stóð á öndinni í aprílmánuði þegar tilkynnt var að Vilhjálmur Bretaprins og unnusta hans, Kate Middleton, hefðu slitið samvistum. Talið hafði verið að þau myndu ganga í hjónaband og hún yrði því drottning landsins þegar Vilhjálmur erfir krúnuna. Nú hefur breska Heimsfréttablaðið greint frá því að samband þeirra Vilhjálms og Kate standi enn. Raunar liðu ekki nema fjórir dagar frá því þau hættu saman þar til þau voru komin aftur í fang hvors annars. „Þetta hefur verið heilmikið mál, að halda sambandinu leyndu og að skipuleggja leynilega ástarfundi þeirra," segir heimildarmaður blaðsins. „Vilhjálmur og Kate voru ósátt og þau hættu saman. Hins vegar liðu ekki nema nokkrir dagar þar til þau voru byrjuð saman aftur." Þar að auki töluðu þau mikið saman í síma fyrstu dagana eftir að þau hættu saman. Ástæða þess að prinsinn og Kate hafa haldið sambandi sínu leyndu í þrjá mánuði er sú að þau vildu losna við þá pressu sem var á þeim. Mikið hafði verið rætt og ritað um að þau ætluðu að trúlofa sig. „Þau þoldu einfaldlega ekki pressuna. Svo hefði það líka verið hálf hallærislegt að byrja strax saman aftur eftir svo áberandi skilnað." Á meðan breskir fjölmiðlar skrifuðu mikið um hinn nýja piparsveinalífsstíl Vilhjálms var hann í raun enn ástfanginn af Kate Middleton. Og það jafnvel meira en áður: „Þau eru yfir sig ástfangin, og mun hamingjusamari en þegar heimsbyggðin fylgdist með þeim. Ég held ekki að þau muni nokkurn tímann aftur íhuga að hætta saman."
Mest lesið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Lífið Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Lífið Of Monsters and Men með stórtónleika á Íslandi Tónlist Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Lífið Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Lífið Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Lífið Ásgeir heldur stórtónleika í Hörpu í ágúst Tónlist Fleiri fréttir Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Sjá meira