Sjúkir Mosfellingar sóttir allt of seint 30. júní 2007 05:45
Íbúar Mosfellsbæjar eru langverst settir hvað varðar viðbragðstíma sjúkrabíla á höfuðborgarsvæðinu. Í minna en tíu prósentum tilfella var sjúkrabíll í forgangsakstri kominn til Mosfellsbæjar undir viðmiðunarmörkum, sem eru átta mínútur, á síðasta ári. Í Reykjavík, Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi og Álftanesi var hlutfallið 60 til 70 prósent. Seltjarnarnes er í næstneðsta sæti, með fjörutíu prósent neyðarútkalla undir viðmiðunarmörkum. Aðalástæðan fyrir þessum mjög slæma viðbragðstíma til Mosfellsbæjar er óheppileg staðsetning slökkvistöðvarinnar við Tunguháls. Of langan tíma tekur fyrir sjúkrabílana að komast út á Vesturlandsveginn, og þaðan í Mosfellsbæ. Þessar upplýsingar koma fram í skýrslu Margrétar Maríu Leifsdóttur, sérfræðings á greiningasviði Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Tölfræðin er meðal annars notuð til að finna bestu staðsetningu slökkvistöðva. Byrjað var að greina viðbragðstíma neyðarútkalla árið 2005. Margrét segir að í bígerð sé að leggja niður stöðina við Tunguháls og reisa nýja hjá Vesturlandsvegi við rætur Úlfarsfells. Ætlunin er að taka hana í gagnið árið 2009. Með því móti ætti viðbragðstími til Mosfellsbæjar að komast í eðlileg horf. Þangað til verða Mosfellingar að sætta sig við verri þjónustu en aðrir á höfuðborgarsvæðinu. Viðbragðstími er skilgreindur sem tíminn sem líður frá því að símtal berst Neyðarlínunni og þar til sjúkraliðar eru komnir til sjúklingsins. Hver sekúnda skiptir máli þegar um slasaða er að ræða, og því eru viðmiðunarmörkin átta mínútur hvert sem er á höfuðborgarsvæðinu. Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir vissulega rétt að Mosfellsbærinn sé illa settur hvað varðar viðbragðstíma. „Nú þegar búið er að greina vandann og meta gæði þjónustunnar verður gripið til ráðstafana og slökkvistöðvum höfuðborgarsvæðisins fjölgað.“
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtisöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Erlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Erlent Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Innlent „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtisöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sjá meira