Ekta sveitabrúðkaup hjá Hreimi og æskuástinni 30. júní 2007 02:45 Hreimur ásamt verðandi eiginkonu sinni, Þorbjörgu Sif Þorsteinsdóttur, og bráðum tveggja ára dóttur þeirra, Emblu Margréti. Fréttablaðið/GVA
Popparinn Hreimur Heimisson mun ganga í það heilaga í dag með unnustu sinni til margra ára, Þorbjörgu Sif Þorsteinsdóttur. Þetta verður sannkallað sveitabrúðkaup því athöfnin mun fara fram í Fljótshlíð og verður traktor notaður sem brúðarbíll. „Við erum bæði úr sveitinni og vildum gera þetta svona. Það er mikil tilhlökkun,“ segir Hreimur, sem sjálfur mun þó ekki taka lagið í kirkjunni. „Þrátt fyrir að maður hafi aðgang að hinum ýmsu söngvurum til að syngja vildi ég ekkert vera að bögga þá, enda margir allt að þríbókaðir í brúðkaupum alla helgina. Ég ákvað því að gefa þeim frí og sjálfum mér líka,“ segir Hreimur. Sönghópurinn Öðlingarnir, sem er ákveðinn kjarni úr Karlakór Rangæinga, mun syngja í kirkjunni ásamt tveimur frænkum Hreims sem syngja munu Bítlalagið Till there was you. „Þær eru 16 og 17 ára, sprenglærðar í píanó og söng, og mér fannst tilvalið að gefa þeim tækifæri,“ segir Hreimur sem á síðan afmæli á morgun – verður 29 ára gamall. Fyrsta lagið af væntanlegri plötu Hreims og Vignis Snæs Vigfússonar er komið í spilun, en það heitir Ástfanginn og er eftir Hreim. „Ég samdi lagið fljótlega eftir að dóttir mín fæddist en textinn varð til þegar við vorum við upptökur á plötunni í Danmörku á síðasta ári. Ég var farinn að sakna stelpnanna minna og þá varð þessi texti til,“ segir Hreimur en lagið hefur hlotið góðar viðtökur á útvarpsstöðum landsins. Hreimur og Vignir hafa verið að spila saman síðustu þrjú ár og koma oftast fram tveir einir, með gítarinn og röddina að vopni, eins og Hreimur segir frá. „Okkur líkar einstaklega vel við þetta form. Við erum í nánara sambandi við fólkið í salnum og náum að kynnast því miklu betur,“ útskýrir Hreimur en hann og Vignir munu reyna að koma fram í sumar þegar tími gefst til. Þá er líklegt að hljómsveitin Land og synir fari aftur á stjá í haust. „Það er mikið að gera hjá meðlimum sveitarinnar og hljómsveitin er ekki númer eitt í forgangsröðinni. En við viljum að sjálfsögðu hlúa að okkar vörumerki og stefnum á að gefa út eitt lag,“ segir Hreimur.
Mest lesið Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Lífið Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Lífið Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Lífið Útför Björgvins Halldórssonar Lífið Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Lífið Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Lífið Myndaveisla: Sjóðheit tískusýning í Hörpu Tíska og hönnun Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Lífið Klámhundarnir engu gleymt Gagnrýni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Lífið Fleiri fréttir Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Sjá meira