Auðkýfingur kaupir hlut í galleríi í miðborginni 29. júní 2007 10:00 Gallerí Turpentine er í 300 fermetra húsnæði við Ingólfsstræti. MYND/Anton „
Þetta er nú engin stóreflisfjárfesting. Það er mikill listaáhugi í fjölskyldunni og þess vegna tókum við þátt í þessu," segir auðkýfingurinn Sindri Sindrason, hluthafi og stjórnarmaður í Actavis, sem ásamt fjölskyldu sinni hefur keypt stóran hlut í Gallerí Turpentine við Ingólfsstræti. Kaupverðið er ekki gefið upp en samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins hleypur það á tugum milljóna króna. Sveinn Þórólfsson, aðaleigandi gallerísins, vildi lítið tjá sig um málið við Fréttablaðið en ljóst er að með tilkomu Sindra og fjölskyldu í eigendahópinn verður til fjármagn sem ætti að geta aukið enn frekar á ört vaxandi hróður gallerísins. Og sjálfur útilokar Sindri ekki að Turpentine muni stækka við sig á næstunni. „Eru menn ekki alls staðar að reyna að stækka og gera betur?" Sindri Sindrason eldri og yngri ætla að reyna fyrir sér í listaheiminum á næstunni en öll stórfjölskyldan hefur mikinn áhuga á listum. Að sögn eiginkonu Sindra, Kristbjargar Sigurðardóttur, hefur það lengi blundað í fjölskyldunni að koma að slíkri starfsemi. „Við höfum verið viðskiptavinir hjá Turpentine og höfum heillast af þeirri starfsemi sem þarna hefur verið í gangi. Þetta er glæsilegt gallerí og býður upp á mikla möguleika," segir Kristbjörg. Ingunn Dögg, dóttir þeirra hjóna, er menntuð í forvörslu frá Flórens á Ítalíu og mun koma mikið að starfi Turpentine í nánustu framtíð og svo er sonurinn Sindri Sindrason, aðstoðarmaður Jóns Ásgeirs Jóhannessonar hjá Baugi, auk þess mikill listunnandi. Í dag er Gallerí Turpentine starfrækt í 300 fermetra húsnæði við Ingólfsstræti en það var stofnað í upphafi ársins 2005 af fyrrnefndum Sveini og Guðrúnu Gunnarsdóttur. Þau munu áfram eiga hlut í galleríinu þrátt fyrir að hafa selt hluta þess til Sindra og fjölskyldu. Margir af athyglisverðustu listamönnum þjóðarinnar sýna verk sín í Turpentine, þar á meðal Jón Sæmundur Auðarson, Steingrímur Eyfjörð, Guðrún Vera Hjartardóttir og Hallgrímur Helgason.
Mest lesið „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Lífið Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu Bíó og sjónvarp Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Lífið Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Lífið „Það voru margir með tár á hvarmi“ Lífið Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Lífið Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Menning Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni Lífið „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Sjá meira